143. löggjafarþing — 36. fundur,  13. des. 2013.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.

3. mál
[11:47]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Herra forseti. Mikið vildi ég geta samþykkt það að lengja fæðingarorlofið en vegna hallans á ríkissjóði og vegna þeirrar miklu skuldasöfnunar sem er á ríkissjóði og mikilla vaxtagreiðslna get ég ekki greitt atkvæði með þessu. Ég veit nefnilega hver borgar það ef við náum ekki tökum á fjármálum ríkisins. Það eru nefnilega börnin okkar, það eru börnin okkar sem munu borga þessar skuldir ef okkur tekst ekki að ná afgangi á ríkissjóð. Þess vegna tel ég það vera mikilvægara fyrir börnin, efnahagslífið, foreldrana sem borga af verðtryggðum lánum vegna þess að verðbólgan er afleiðing af hallarekstri ríkissjóðs.

Ég styð þá tillögu að stytta fæðingarorlofið úr fimm í þrjá sinnum þrjá þó að ég væri hlynntur því að fara hina. Þetta er nefnilega innstæðulaus ávísun.