143. löggjafarþing — 36. fundur,  13. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[12:05]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Vigdís Hauksdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar. Í byrjun vil ég sem formaður fjárlaganefndar Alþingis þakka nefndarmönnum í nefndinni fyrir gott samstarf og góða vinnu við undirbúning fjárlaga. Ég halla ekki á neinn er ég þakka varaformanni nefndarinnar, hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni, sérstaklega fyrir farsælt samstarf. Einnig þakka ég samstarfsmönnum fjárlaganefndar óeigingjarnt starf í fjárlagaferlinu öllu. Sérstaklega vil ég þó þakka stjórnarmeirihlutanum fyrir þá staðfestu að hvika ekki frá því meginmarkmiði að fjárlög ársins 2014 verði hallalaus. Því markmiði verður haldið allt til loka fjárlagavinnunnar og hvergi hvikað.

Alþingi fer með fjárveitingavaldið og líta má á fjárlög hvers árs sem takmarkaða auðlind. Það er mikil ábyrgð sem fylgir því að ráðstafa skattfé landsmanna með sem sanngjörnustum hætti og að forgangsraða í ríkisrekstrinum. Það markmið tel ég að meiri hluti fjárlaganefndar hafi uppfyllt með því að forgangsraða til heilbrigðismála. Segja má að forgangsröðun sú sem birtist í nefndaráliti meiri hlutans sé þjóðarsátt um fjárlög ársins 2014. Við reisum við heilbrigðiskerfið sem holað var að innan í tíð síðustu ríkisstjórnar, jafnt á Reykjavíkursvæðinu sem á landsbyggðinni. Við forgangsröðum í þágu fólksins í landinu öllu, í grunnþjónustunni sleppum við óþarfanum sem sumir kalla gæluverkefni fyrri ríkisstjórnar. Við náum að snúa af braut hömlulausra útgjalda í ríkisrekstri í það að skila hallalausum fjárlögum og meira að segja skila örlitlum afgangi.

Ný sókn er hafin, virðulegi forseti, undir forustu Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Ég lít björtum augum til fjárlagavinnunnar út þetta kjörtímabil, því næsta verkefni er að skila ekki bara hallalausum fjárlögum heldur fjárlögum með drjúgum afgangi svo að strax á næsta ári verði hægt að fara að greiða niður erlendar skuldir ríkissjóðs.

Stjórnarflokkarnir tóku við villandi búi hvað varðar rekstur ríkissjóðs. Fjárlög síðasta árs áttu að vera með einungis 3,7 milljarða halla, en þegar núverandi ríkisstjórn tók við kom í ljós að fjárlög síðasta árs voru byggð á veikum grunni líkt og 25,5 milljarða halli ársins gefur til kynna í fjáraukalagafrumvarpi fyrir árið 2013. Stafar það helst af því að tekjuáætlun fyrri ríkisstjórnar var byggð á lofti og var innstæðulaus með öllu. Við endurmat nú í nóvember kom reyndar í ljós að staðan verður sennilega heldur skárri, eða nálægt 20 milljörðum í mínus. Stafar það af heldur betri og jákvæðari horfum í efnahagslífinu, en staðan er samt sem áður mjög brothætt.

Fyrrverandi stjórnvöld tóku ekki á undirliggjandi vanda heldur beittu flötum niðurskurði á útgjaldaliðina sem aðeins á að gera í undantekningartilvikum, en ófært er að gera það ár eftir ár eins og ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar gerði á árabilinu 2009–2013. Það verður að viðurkennast að þessi fyrstu fjárlög núverandi ríkisstjórnarflokka eru að hluta til framlenging á þeim flata niðurskurði. Ríkisstjórnin setti á fót hagræðingarhóp til að gera tillögur um hagræðingu og rekstrarsparnað í ríkisrekstrinum. Tillögum var skilað nú í haust og mun ég víkja að þeim seinna í ræðu minni.

Vandi ríkissjóðs er vandi okkar allra. Vaxtagjöld ríkissjóðs nema á þessu ári 74,4 milljörðum, en það eru 13% af heildarútgjöldum ríkissjóðs. Þessi upphæð hefði dugað til að reka Landspítalann til dæmis í tvö ár. Þessi upphæð hefði dugað til þess að reka Háskóla Íslands í sjö ár, svo að einhver dæmi séu tekin. Það er gott að setja tölur í samhengi þegar þessi mál eru skoðuð. Það sjá allir að af þessari leið verður að víkja. Það að greiða slíkan hluta af tekjum ríkissjóðs í vaxtakostnað er algjörlega óásættanlegt.

Nú þegar stefnir í að ríkissjóður verði rekinn hallalaus á næsta ári hljóta stjórnarflokkarnir að setja sér það markmið að greiða niður skuldir ríkissjóðs um 5–10% árlega þannig að langtímamarkmiðið verði að ríkissjóður verði laus við vaxtaberandi skuldir innan 20 ára. Lækkun skulda ríkissjóðs stuðlar að vaxtalækkun í landinu sem kemur okkur öllum til góða, jafnt fjölskyldum sem fyrirtækjum. Ríkissjóður Íslands verður að hætta að safna skuldum. Þessi aukna staðfesta þingsins og fjárlaganefndar er fagnaðarefni, en hér á árum áður var það oft svo að stærsta vandamál ríkissjóðs og fjármálaráðherra hvers tíma var útgjaldagleði fjárlaganefndar, enda var það haft í flimtingum á þeim tíma og hún var stundum kölluð fjárveitinganefnd en ekki fjárlaganefnd.

Meiri hluti fjárlaganefndar telur gríðarlega mikilvægt að ná hallalausum fjárlögum og er algjör samstaða í því. Það gerist ekki án þess að taka erfiðar ákvarðanir. Umræður frá Bandaríkjunum um síhækkandi skuldaþak eiga að vera okkur víti til varnaðar og sýna mikilvægi þess að taka fast á í ríkisfjármálunum. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er sérstaklega komið inn á hagræðingu í ríkisrekstri og mikilvægi þess að hefja niðurgreiðslu á skuldum ríkissjóðs. Þar segir meðal annars um þessi mál, með leyfi forseta:

„Ábyrg efnahagsstjórn er forsenda velferðar, öflugs heilbrigðis- og menntakerfis, löggæslu og annarrar grunnþjónustu. Agi og jafnvægi í ríkisfjármálum gegnir lykilhlutverki við að tryggja stöðugleika, lægri vexti og litla verðbólgu.“

Ríkisstjórnin skipaði einnig sérstakan hagræðingarhóp sem í voru, ásamt þeirri sem hér stendur, hv. þingmenn Guðlaugur Þór Þórðarson, Unnur Brá Konráðsdóttir og Ásmundur Einar Daðason, sem gegndi formennsku í hópnum. Þessi vinna var unnin til hliðar við hefðbundna fjárlagavinnu.

Hagræðingarhópurinn lagði ekki áherslu á beinar niðurskurðartillögur, heldur á kerfisbreytingar sem beinast að breytingum á áherslum, aðferðum, skipulagi og sameiningu stofnana. Þessar breytingar munu stuðla að væntanlegri hagræðingu og auknum árangri til lengri tíma. Fjárhagslegur ávinningur getur numið tugum milljarða ef vel tekst til og getur birst í lægri fjárveitingum en einnig í aukinni og bættri þjónustu.

Formanni hagræðingarhópsins var síðan falið með skipan í aðstoðarmannsembætti forsætisráðherra að fylgja þessum tillögum eftir og koma þeim til framkvæmda í samráði við einstök ráðuneyti og undirstofnanir. Gera má ráð fyrir að þessar breytingar verði farnar að skila miklum árangri í lok næsta árs og að þær birtist við fjárlagagerð ársins 2015 í lægri fjárveitingum til einstakra stofnana og ráðuneyta.

Áður en ég fer yfir einstakar breytingartillögur meiri hluta fjárlaganefndar fyrir 2. umr. fjárlaga vil ég segja að stigin eru ákveðin skref í átt til aukinnar hagræðingar. Ég vil þó ítreka að hér er ekki um að ræða lokaskref heldur upphaf vegferðar sem ríkisstjórnarflokkarnir boða á rekstri hins opinbera á næstu árum. Meiri hluti fjárlaganefndar mun hér eftir sem hingað til standa fast við þessa stefnu ríkisstjórnarflokkanna, enda er hún undirstaða þess að við getum byggt upp velferð til framtíðar, aukið fjármagn til heilbrigðismála, löggæslu og fleiri mikilvægra málaflokka sem getið er í stjórnarsáttmálanum.

Virðulegi forseti. Þá ætla ég aðeins að líta til nefndarálitsins sjálfs sem liggur frammi sem þingskjal og ætla að grípa ofan í það varðandi þær megináherslur sem birtast í fjárlagafrumvarpinu við upphaf 2. umr.

Þá er fyrst að nefna að reiknað er með að mál sem varðar aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar um höfuðstólslækkun húsnæðislána, sem kynnt var 30. nóvember sl., verði lögð fram og afgreidd við 3. umr. fjárlaga. Ég óska eftir því, virðulegi forseti, að málið verði kallað til fjárlaganefndar eftir að 2. umr. lýkur til að fjárlaganefnd fái það svigrúm sem þarf til að fjalla um málið þegar þær breytingartillögur koma fram.

Meiri hlutinn gerir breytingartillögu við tekjuáætlun frumvarpsins sem nemur 4.264,9 milljónum til hækkunar og einnig breytingartillögu við sundurliðun 2, þ.e. fjármál ríkisaðila í A-hluta sem samtals nemur 4.061,9 millj. kr. til hækkunar gjalda. Á rekstrargrunni verða því heildartekjur ársins rúmur 591 milljarður og heildargjöld tæpur 591 milljarður, því nú er gert ráð fyrir örlítið betri afkomu en í frumvarpinu. Afkoman er því áætluð jákvæð um 661,7 millj. kr.

Tillögur til hækkunar tekna byggjast nær alfarið á endurmati fjármálaráðuneytisins á tekjum næsta árs. Endurmatið byggist á þróun innheimtu tekna það sem af er árinu 2013 og endanlegri álagningu lögaðila fyrir síðastliðið ár, auk þess sem tekið hefur verið tillit til nýrrar þjóðhagsspár Hagstofu Íslands sem kom út 15. nóvember sl.

Tekjurnar hækka í heild um 4,3 milljarða og vegur þar þyngst að skattur á tekjur og hagnað er talinn skila 3 milljörðum kr. umfram fjárlög og skattar á vörur og þjónustu 2,3 milljörðum, en á móti vegur lækkun arðgreiðslna og fleira um 1,8 milljarða. Önnur frávik eru minni.

Á gjaldahlið munar mestu um hækkanir hjá velferðarráðuneytinu sem samtals nema 4,1 milljarði, eða því sem næst sömu fjárhæð og heildarhækkun gjalda sem var 4.061,9 millj. kr. eins og áður hefur komið fram. Með þessum hækkunum kemur fram stefnumótun stjórnvalda í þágu heilbrigðiskerfisins.

Eins og fram kemur í umfjöllun um einstaka liði hækka rekstrarfjárveitingar til Landspítalans, Sjúkrahússins á Akureyri og til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni og að auki hækka tækjakaupa- og viðhaldsfjárveitingar til sömu aðila.

Fjárheimildir annarra ráðuneyta breytast mun minna. Hækkanir eru óverulegar og lækkanir skýrast einkum af sérstakri aðhaldskröfu til viðbótar því sem kom fram í frumvarpinu. Þannig lækka framlög til utanríkisráðuneytisins um 620 millj. kr. og til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins um 106 millj. kr.

Ekki eru miklar breytingar á bótaliðum. Til dæmis er engin breyting á barnabótum, en vaxtabætur lækka um 500 milljónir frá frumvarpinu.

Meiri hluti fjárlaganefndar beitti sér fyrir því að aðalskrifstofur ráðuneyta auk nokkurra stofnana og annarra fjárlagaliða tækju á sig 5% aðhaldskröfu til þess að ná fram forgangsröðun í þágu heilbrigðismála. Það var gert. Sú krafa var sett fram eftir að fjárlagafrumvarpið var lagt fram í þinginu, því að meiri hluti fjárlaganefndar sá að ná yrði fram meiri sparnaði en lagt var fram í frumvarpinu og á einhvern hátt að auka tekjur ríkissjóðs til þess að hægt væri að forgangsraða enn frekar, þá er ég að tala um heilbrigðisþjónustu á Landspítalanum og fjölgun hjúkrunarrýma.

Þessi aðgerð og tillaga meiri hluta fjárlaganefndar var samþykkt af ríkisstjórn og því birtist hún hér í frumvarpi þessu. Því er afar gleðilegt að hægt var að fara með enn meira fé inn í heilbrigðismálin með þessari aðgerð.

Meiri hlutinn lagði mikla vinnu í að hagræða til að skapa svigrúm og einnig til að ná þessum markmiðum um hallalaus fjárlög.

Eins og kunnugt er hefur aðhaldskrafa í fjárlögum verið umtalsverð á síðastliðnum árum. Oftar en ekki hefur útgjaldalækkun komið fram í frestun framkvæmda, en meiri hluti fjárlaganefndar hefur hug á að breyta um áherslur og beita sér fyrir því að aðhaldskröfum næstu ára verði í auknum mæli mætt með skipulagsbreytingum í ríkisrekstri samfara endurskoðun á verkefnum í stað þess að fresta tækjakaupum og viðhaldi.

Virðulegi forseti. Því eru boðaðar hér miklar breytingar á fjárlagavinnunni til framtíðar út kjörtímabilið. Ég kem inn á það í lokaorðum mínum hér á eftir að fjárlaganefnd hefur sýnt það með störfum sínum, eftir síðastliðnar alþingiskosningar, að hún er að verða sjálfstæð nefnd sem starfar hér í þinginu og er á nokkurn hátt að slíta sig frá framkvæmdarvaldinu.

Mig langar aðeins til að minnast á ákveðna þætti og breytingar sem fjárlaganefnd hefur gert við fjárlagafrumvarpið eftir að það kom fram fyrir utan þær tillögur sem ég hef farið yfir er varða heilbrigðismálin.

Ég vil sérstaklega minnast á framsýni meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar sem stýrt er af hv. þm. Unni Brá Konráðsdóttur, en hún á einnig sæti í hagræðingarhópnum, eins og hefur komið fram, og er varamaður í fjárlaganefnd. Allsherjar- og menntamálanefnd hvers tíma ber að skila tillögu til fjárlaganefndar fyrir 2. umr. varðandi heiðurslaun listamanna. Nú bar svo við að breyting varð á listanum um heiðurslaun listamanna og hafa þrír einstaklingar sem á þeim launum voru fallið frá — blessuð sé minning þeirra. En samkvæmt lögum um heiðurslaun listamanna má fjárveitingavaldið hafa 25 einstaklinga að hámarki á þessum fjárlagalið.

Núna njóta 24 einstaklingar heiðurslauna listamanna. Undir forustu hv. þm. Unnar Brár Konráðsdóttur var tekin sú ákvörðun af allsherjar- og menntamálanefnd að bæta ekki þar við heldur draga úr fjárframlögum ríkisins og skilar þessi aðgerð ein 7 milljónum á ári. Því ber að fagna að þingmenn allir séu á einhvern hátt að leggja til sparnað fyrir ríkið. Á þessu vildi ég, virðulegi forseti, vekja athygli.

Við í meiri hlutanum erum einnig mjög ánægð með að við þessa hagræðingarkröfu fjárlaganefndar milli 1. og 2. umr. fengum við jafnframt svigrúm til að veita 100 millj. kr. framlag til Fjölbrautaskóla Suðurlands. Sveitarfélögin á Suðurlandi hafa í mörg ár safnað fyrir framlagi sveitarfélaganna, en sveitarfélögin fara með 40% fjármögnunar og ríkið 60%, þannig að nú er hægt að fara af stað með þá byggingu sem fyrirhuguð hefur verið í mörg ár við Fjölbrautaskóla Suðurlands til að efla enn frekar iðnnám. Á það er minnst í stjórnarsáttmála að að þeim þáttum skuli hugað sérstaklega. Þannig að þetta er einkar áhugavert.

Meiri hluti fjárlaganefndar fann einnig svigrúm til að bæta 10 millj. kr. í Kvennaathvarfið sem er afar mikilvægt í ljósi þess starfs sem þar er unnið. Svo gátum við fundið svigrúm til að halda úti dreifnámi út um landið, en það byggist upp á því að unglingar sem eru komnir á menntaskólastig geti verið lengur í sinni heimabyggð í stað þess að flytja úr foreldrahúsum.

Mig langar einnig til að benda hér á breytingartillögu sem varða 6. gr. heimildina í fjárlögum. Búið er að setja hér inn nýja grein sem hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Að selja óhentugar eða óhagkvæmar húseignir utanríkisþjónustunnar erlendis og verja hluta söluverðs til að kaupa eða leigja hentugra húsnæði.“

Þarna er enn á ný verið að benda á það að utanríkisþjónustan er of kostnaðarsöm fyrir svo fámenna þjóð, þannig að verið er að veita heimild til að ráðast í þessar gagngeru breytingar.

Einnig langar mig til að benda á heimildina sem ég minntist á í gær í atkvæðaskýringu við fjáraukalögin. Þarna er komin heimild inn á nýjan leik, með leyfi forseta, sem hljóðar svo:

„Að endurgreiða virðisaukaskatt af sérhæfðum íþróttabúnaði fyrir fatlaða íþróttamenn.“

Það eru hér breytingartillögur við 6. gr. í þó nokkrum töluliðum, en ég tel að þetta séu kannski þær helstu sem vert er að vekja athygli á.

Hæstv. forseti. Sá meiri hluti fjárlaganefndar sem ég veiti forustu hefur við undirbúning þessa fjárlagafrumvarps sýnt ábyrgð í hvívetna. Við höfum ekki hvikað frá kröfunni um að skila hallalausum fjárlögum og ekki hopað í þeirri staðfestu þó að að okkur hafi verið vegið.

Það er hlutverk okkar allra og ekki síst ríkisstjórnarinnar í heild og einstakra ráðherra að horfa til heildarhagsmuna en einblína ekki um of á einstaka málaflokka í sínu ráðuneyti eða stofnun sem undir viðkomandi ráðuneyti fellur.

Á liðnum árum hefur verið þrengt mjög að heilbrigðisþjónustu í landinu í stað þess að taka á rekstrarútgjöldum ýmissa stofnana og ráðuneyta sem þanist hafa út í kostnaði á undanförnum árum.

Ég ætla mér ekki að vísa til ákveðinna málaflokka eða stofnana í lokaorðum mínum, en auðvelt er að yfirfæra útgjaldaþróunina með samanburði fjárlaga síðustu ára.

Stjórnarflokkarnir setja hag fólksins í landinu í öndvegi og við myndun núverandi ríkisstjórnar. Þar ber hæst að nefna leiðréttingar á skuldum heimilanna og bætta heilbrigðisþjónustu til handa landsmönnum. Nú þegar hafa heildstæðar tillögur varðandi skuldug heimili verið kynntar og eru að fara í framkvæmd. Í dag ræðum við þingmenn meiri háttar breytingar á því fjárlagafrumvarpi sem skilað var til þingsins þann 1. október sl. til forgangsröðunar ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum.

Því er full ástæða til bjartsýni og gleði í fjárlagavinnunni. Nýmæli við fjárlagagerðina er að stjórnarflokkarnir settu upp hóp stjórnarþingmanna til að gera tillögur um hagræðingu og sameiningu stofnana á vegum ríkisins. Niðurstöður úr þeirri vinnu gefa fullt tilefni til að draga þá ályktun að verulega sé hægt að hagræða og draga úr kostnaði ríkissjóðs á komandi árum án þess að skerða heilbrigðisþjónustu og aðra grunnþjónustu sem ríkinu er ætlað að veita.

Meiri hluti fjárlaganefndar lagði jafnframt fram hagræðingartillögur eftir að fjárlagafrumvarpið var komið fram í þinginu eins og áður segir, en það er líka algjört nýmæli. Fjárlaganefnd hagræddi innan frumvarpsins og færði til fjármuni milli málaflokka, auk þess að leggja til nýja útgjaldaliði sem ekki var gert ráð fyrir í frumvarpinu. Sjálfstæði fjárlaganefndar frá framkvæmdarvaldinu var því staðfest á táknrænan hátt í þessari vinnu. Því ber að fagna þegar litið er til þrígreiningar ríkisvaldsins.

Þegar litið er til fjárlagavinnu næstu ára hefur ríkisstjórnin ákveðið að vinna að tillögum hagræðingarhópsins og hefur falið formanni hans, hv. þm. Ásmundi Einari Daðasyni, aðstoðarmanni forsætisráðherra, að fylgja þessari vinnu eftir og hrinda þessum verkefnum í framkvæmd.

Mikilvægt er fyrir landsmenn alla að tillögunum verið fylgt fast eftir, því að hagræðing og lækkun kostnaðar í rekstri ríkissjóðs er forsenda þess að hægt verði í framtíðinni að reka ríkissjóð með tekjuafgangi og lækka þar með vaxtabyrði ríkisins. Fjárlaganefnd heitir á ríkisstjórn, alþingismenn og forsvarsmenn í rekstri ríkisins að taka nú höndum saman og einhenda sér í það sem gera þarf áður en það verður of seint og skuldir ríkisins verða ill- eða óviðráðanlegar. Við höfum takmarkaðan tíma til að snúa af óábyrgri braut í ríkisrekstri. Það þýðir ekki að bíða eftir að hættan fari hjá því að hættan er raunveruleg. Fjárlög ársins 2015 verða að vera með verulegum tekjuafgangi svo að hægt verði að hefjast handa við niðurgreiðslu skulda ríkissjóðs.

Það er von okkar að um þessi fjárlög skapist góð samstaða og litið verði á þau sem undirbúning að því að snúa við óheillaþróun í rekstri ríkissjóðs og hefja von bráðar niðurgreiðslu á ríkisskuldum sem er brýn nauðsyn svo að Íslendingum farnist vel í framtíðinni og landið haldi efnahagslegu sjálfstæði. Við þurfum þjóðarsátt til framtíðar í forgangsröðun í ríkisrekstri.