143. löggjafarþing — 36. fundur,  13. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[14:24]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hún talar um að samdráttarskeiði sé lokið. Í upphafi síðasta kjörtímabils var staðan þannig á ríkissjóði að langt fram eftir ári 2010 vofði gjaldþrot yfir. Staðan var mjög alvarleg. Hallinn var 216 milljarðar kr. Verðbólga var 18,6% og hagvöxtur var neikvæður um 6%, ef ég man þá tölu rétt. Grípa þurfti til róttækra aðgerða og það gerði ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.

Það eru gleðilegar fréttir að aðeins rúmum fjórum árum síðar horfum við fram á heildarjöfnuð í ríkisfjármálum, að við náum að loka gatinu. Það eru jákvæðar, góðar fréttir en auðvitað byggir sá árangur á því sem gerðist á síðasta kjörtímabili. Hann byggir á árangri ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna.

Hv. þingmaður talar um ólöglegt aukaveiðigjald. Tæknileg vandkvæði voru á frumvarpi síðustu ríkisstjórnar um veiðigjaldið þannig að nefndin sem reikna átti út veiðigjaldið gat ekki fengið þær upplýsingar sem hún þurfti. Þær voru til en það vantaði heimildir. Það sem þurfti þá að gera var að afla heimildanna til að nefndin gæti unnið en það var ekki (Forseti hringir.) gert heldur var veiðigjaldið lækkað. Ég fer nánar út í það í seinna andsvari.