fjárlög 2014.
Virðulegi forseti. Mig langar að spyrja hv. þingmann að nokkrum hlutum. Ég virði það við hv. þingmann að hún er þó með tekjuöflunarleiðir á móti þessum ágætu útgjöldum sem hún leggur til, hún er þarna með gjald á bankastarfsemi. Ég velti fyrir mér af hverju hún lagði það ekki á í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar þar sem hv. þingmaður var fjármálaráðherra um tíma.
Einnig er henni tíðrætt um afslátt til sjávarútvegsins á veiðileyfagjöldum. Ég spyr hana hvernig hún hugsi sér þessa hækkun á veiðileyfagjaldinu um 5,8 milljarða. Ætlar hún að hækka það enn þá meira? Eins og hv. þingmaður veit var veiðileyfagjaldið hækkað verulega til stórútgerðarinnar, til uppsjávarflotans en lækkað til smærri útgerða, til botnfisksveiðanna. Í nýjum Hagtíðindum kemur í ljós að ágæt afkoma er á sjávarútveginum í heild. Afkoman er langbest í uppsjávargeiranum þar sem hún er langt yfir 30%, en lægst í smábátaflotanum, meðaltalið þar er 7%. Ég spyr: Hvernig ætlar hv. þingmaður sér að leggja þessi gjöld á og skipta þeim á flotann?