fjárlög 2014.
Virðulegi forseti. Mér finnst svolítið skondið að það er verið að leggja til aukningu á veiðileyfagjöldum en í sömu andrá á að leggja til aukinn afslátt. Það er sem sagt verið að mismuna fyrirtækjum. Það á að mismuna fyrirtækjum. Er það tilfellið að hv. þingmaður ætli að skattleggja enn þá meira? Þeim fyrirtækjum sem borga obbann af veiðileyfagjöldunum fannst nóg um. Markmiðið er sem sagt að auka álögurnar á þau enn þá meira.
Á síðasta ári var tæplega 50% aukning á veiði sem skýrir að hluta þessa góðu afkomu hjá uppsjávarskipunum en við sjáum að nú er útlit fyrir að þau nái ekki einu sinni síldarkvótanum. (Forseti hringir.) Þannig að ég spyr: Ætlar hv. þingmaður að hækka enn þá meira á uppsjávargeirann?