fjárlög 2014.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mér fannst hún málefnaleg og mér fannst hv. þingmaður bjóða upp á samtal. Ég þakka fyrir það. Ég tek undir með henni að þegar verið er að tala um bætt vinnulag og hvernig við getum hagað undirbúningi að stefnumörkun í opinberum fjármálum þá eigum við að gera það saman og þvert á flokka.
Ég vil spyrja hv. þingmann þar sem hún er formaður allsherjar- og menntamálanefndar. Hæstv. menntamálaráðherra hefur nú boðað undirbúning að mikilli skipulagsbreytingu í framhaldsskólum þar sem miðað er við styttingu náms. Ef ég man rétt þá eru lög um framhaldsskóla þannig að lágmarkseiningafjöldi er ekki inni í lögunum þannig að í sjálfu sér er það reglugerðarákvæði og síðan val skólanna hvernig þeir setja upp brautirnar. Hæstv. menntamálaráðherra hefur talað meira um þetta sem stóra skipulagsbreytingu sem af muni verða á kjörtímabilinu en síðan bregður svo við að í 6. gr. heimild er farið fram á það að hæstv. ráðherra veiti leyfi til að gera ráðstafanir varðandi húsnæði framhaldsskóla eða háskóla af því að hann telji að hann þurfi að hafa svigrúm því að vegna skipulagsbreytinga þurfi kannski að breyta húsnæðinu með stuttum fyrirvara. Þetta slær mig svolítið illa vegna þess að ef breyta á stóru kerfi þá þarf auðvitað að taka tillit til bæði nemenda og starfsmanna. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hún geri ráð fyrir því að þessar skipulagsbreytingar fari í gang haustið 2014 eða hvort hún geri ráð fyrir lengri aðdraganda og faglegri umræðu hér í þingsal og í nefndinni.