fjárlög 2014.
Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þetta andsvar. Já, ráðherrann er byrjaður að undirbúa stórar breytingar varðandi framhaldsskólann, það hefur komið fram í fjölmiðlum og ef mig svíkur ekki minni minntist ráðherrann á það þegar hann kom og spjallaði við okkur í þingsalnum einhvern tíma fyrr í vetur. Ég tel að það sé algerlega kristaltært og rétt hjá hv. þingmanni að þarna sé reglugerðarheimild og hægt að fara þá leiðina en að ekki muni koma sérstakt frumvarp um það mál hingað í þingsal.
Hins vegar er algerlega ljóst að það verður ekki farið í svona viðamiklar skipulagsbreytingar nema ræða saman og ég held að menntamálaráðherra hafi sjálfur lýst því yfir að hann muni ræða þessi mál m.a. við okkur í allsherjar- og menntamálanefnd. Ég veit að stjórnarandstaðan hefur haft mikinn áhuga á að spjalla um þessi mál nú í aðdraganda fjáraukalaganna og sendi m.a. beiðni um það til mín sem formanns nefndarinnar, en málið er á forræði fjárlaganefndar þannig að samkvæmt þingsköpum var ekki hægt að taka það upp að þessu sinni hjá okkur. En engu að síður munum við í nefndinni auðvitað fá kynningu á því hvað er í pípunum, ef svo má segja, til framtíðar litið og á þeim stóru breytingum sem boðaðar eru.
En stóra markmiðið hjá okkur öllum hlýtur að vera það að menntakerfið okkar sé gott. Það skili nemendunum aukinni þekkingu og þroska og á endanum skili það samfélaginu auknum hagvexti vegna þess að við vitum það báðar tvær að menntun er gríðarlega mikilvæg. Eitt það besta sem við getum gert er að byggja upp gott menntakerfi hér vegna þess að fræðin segja okkur að með aukinni og bættri menntun eykst hagvöxtur. Og þegar við horfum á aukinn hagvöxt er nú gaman að spjalla saman í fjárlagavinnunni.