143. löggjafarþing — 36. fundur,  13. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[17:24]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu og samtal, eins og okkur er að verða títt að tala um. Af því að hann kom aðeins inn á að við þyrftum að skera niður og fara varlega og allt það svo að hér yrði ekki þjóðargjaldþrot velti ég því því fyrir mér hvernig hann sér fyrir sér að hann hefði farið í verkefnið árið 2009 þegar við blasti raunverulegt þjóðargjaldþrot upp á 216 milljarða halla á ríkissjóði. Í dag er hallinn 5% af því sem hann var fyrir fjórum árum. 5%. Það munar því ægilega miklu. Ég spyr í ljósi þess að honum finnst verkefnið sem við er að fást núna afar mikið og notar þetta stóra orð, að mér finnst, „þjóðargjaldþrot“, í því samhengi.

Hann fór aðeins yfir þróunarmálin og vildi sjá betur útfært í hvað peningarnir færu. Ég velti því fyrir mér hvort ekki sé hægt að kalla eftir — telur hann það? — kalla eftir einhverjum sérstökum upplýsingum hvað það varðar ef það er það sem strandar á, að fólk hefur efasemdir um að leggja meira til.

Við erum ekki sammála um RÚV, þ.e. hvernig þar hefur verið farið fram. Hann talar um starfsmannafjölda. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann veit hvort starfshlutfall hefur minnkað í heildina. Eins og við vitum getur starfsmannafjöldinn verið sami en starfshlutfallið skert.

Að lokum langar mig að spyrja hann hvort hann telur að ohf.-væðingin hafi verið rétt ákvörðun.