143. löggjafarþing — 36. fundur,  13. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[17:26]
Horfa

Karl Garðarsson (F) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Bjarkeyju Gunnarsdóttur fyrir spurningarnar. Ég var sjálfur ekki staddur á Alþingi árið 2009 en persónulega hefði ég reynt að standa vörð um tvo ákveðna hluti, annars vegar heilbrigðiskerfið og hins vegar menntakerfið. Ég held að það hefði þurft að vera lykilatriði í öllu sem var gert á þeim tíma. En ég ítreka að ég var ekki staddur hérna þannig að ég er kannski ekki alveg þess verður að koma með endanlegar tillögur fyrir ríkisstjórnina sem þá var.

Varðandi þróunarmálin er alveg rétt hjá hv. þingmanni að kalla ætti eftir upplýsingum um það. Ég held að þörf sé á því og ég held að við ættum að gera það, ég er sammála því. Ég held að þetta sé eitt af því sem maður heyrir alltaf aftur og aftur, bæði hér innan húss og annars staðar, menn vita ekki í hvað peningarnir eru að fara. Ég er tilbúinn til þess að kalla eftir þessum upplýsingum, mér finnst það nauðsynlegt í umræðunni sem er í gangi.

Varðandi RÚV er ég ekki með upplýsingar um það sem hún óskar eftir, þ.e. starfshlutfallið. Ég sá hins vegar tölur um fjölda starfsmanna en við vitum náttúrlega að hjá Ríkisútvarpinu er mikið um verktaka og hefur alltaf verið og sú stofnun hefur gengið mjög mikið á verktökum, það er alveg rétt, þannig að ég er ekki með starfshlutfallið.

Ohf.-væðingin — mín persónulega skoðun er sú að ég er ekki viss um að hún hafi skilað sér.