143. löggjafarþing — 36. fundur,  13. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[17:35]
Horfa

Karl Garðarsson (F) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Árna Þór Sigurðssyni fyrir þetta framlag. Ég er alveg sammála honum. Við skulum hafa það alveg á hreinu að ég er fylgjandi því að við reynum að ná þessum mörkum um 0,75% eða hvað það er af landsframleiðslu í þróunaraðstoð, og að við náum því sem allra fyrst. Ég er mjög áfram um það og tel að við séum langt fyrir neðan það sem getur verið ákjósanlegt og viðunandi, þrátt fyrir að við vitum líka að önnur ríki í Evrópu eru langt fyrir neðan þau mörk, 0,75%, og það eru ríki sem standa mjög vel fjárhagslega, við erum of neðarlega en við erum samt — en eins og ég segi, það má endalaust deila um hvar við ættum í raun að vera miðað við stöðuna í dag.

Ég er líka alveg sammála hv. þingmanni um að þessi tvíhliða þróunarsamvinna hefur skilað okkur ágætu, ég er alveg sammála því, það er svona opið, við sjáum í hvað peningarnir fara o.s.frv. Ég set hins vegar nokkuð stórt spurningarmerki (Forseti hringir.) við það sem við köllum fjölþjóðlega samvinnu í þessu.