143. löggjafarþing — 36. fundur,  13. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[17:40]
Horfa

Karl Garðarsson (F) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur fyrir þessa spurningu. Ég er alveg sammála henni um ferðaþjónustuna og ég held að það þurfi að taka í gegn allt saman sem og skatteftirlit og skattkerfi ferðaþjónustunnar. Það er alveg ljóst að þetta er mjög vaxandi atvinnugrein. Við vitum líka, og það hefur komið fram, að það er mikið um undanskot frá skatti í þeirri atvinnugrein og það er löngu orðið tímabært að fara að taka það föstum tökum. Ég sé ekki af hverju þessi atvinnugrein — ég skal vera hreinskilinn með það — getur ekki skilað því sama til þjóðfélagsins hvað varðar skatta og aðrar greinar þurfa að gera. Ég hef ekki skilið það enn þá.