143. löggjafarþing — 36. fundur,  13. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[20:29]
Horfa

Karl Garðarsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Árna Þór Sigurðssyni fyrir svarið. Önnur spurning um 110%-leiðina sem farin var á sínum tíma: Er hann sáttur við árangur þeirrar leiðar? Er hann þeirrar skoðunar — tökum bara síðasta ár — að ekki hafi verið hægt að gera meira fyrir heimilin í landinu en gert var? Þá lít ég bara til síðasta árs.