fjárlög 2014.
Hæstv. forseti. Eitt af því sem hefur breyst frá því að við fengum frumvarpið í byrjun var að í fjárlagafrumvarpinu var legugjald á sjúkrahúsum þar sem átti að borga fyrir hvern dag sem viðkomandi lá inni á sjúkrahúsi. Ég veit að hv. þingmaður hefur skoðað það sérstaklega. Því var svo breytt í komugjöld og það kom mér mjög á óvart þegar ég áttaði mig á því að það átti að skila sömu tekjum. Það var búið að finna út eitthvert meðaltal af legudögum yfir árið en það átti síðan að breytast í komugjöld og skila sömu tekjum.
Mig langar að heyra betur frá hv. þingmanni af því að ég veit að hann var með fyrirspurn um þetta á sínum tíma. Ég veit að hann hefur farið yfir það að hluta til í ræðunni en hann vill kannski fylgja því enn betur eftir. Mér sýnist í fljótu bragði, ef það er rétt sem ég hef heyrt frá hv. þingmanni, að komugjöldin verði að vera býsna há til að ná því markmiði að skila sömu tekjum.
Við getum þá verið að tala um verulega íþyngjandi álögur á sjúklinga sem koma nauðugir (Forseti hringir.) viljugir inn á sjúkrahús.