fjárlög 2014.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni fyrir ræðu hans. Hann lét gamminn sannarlega geisa hér og ekki laust við að maður kannaðist við hv. þingmann frá því fyrir fjórum árum þegar hann sat í stjórnarandstöðu.
Ég sé mig knúna til að koma hér og leiðrétta þau rangsannindi sem voru sett fram í ræðu þingmannsins. Það var nú svo að árið 2009, þegar hv. þingmaður tók sæti sem ráðherra í ríkisstjórn Íslands, námu framlög í þróunaraðstoð 0,37% af þjóðartekjum. En þegar hv. núverandi þingmaður tók sæti sem fjármálaráðherra á síðasta kjörtímabili, á árunum 2010–2012, voru framlög til þróunaraðstoðar lækkuð og fóru niður í 0,21% af vergum þjóðartekjum. Þannig var það árið 2011 og 2012 en síðan komu verðbólguskapandi fjárlög, kosningafjárlög Samfylkingar og Vinstri grænna, á síðasta ári og þá var þessi þróunaraðstoð hækkuð upp í 0,05% af vergum þjóðartekjum.
Virðulegi forseti. Það er því mjög ankannalegt að þurfa að sitja hér í þingsal og hlusta á hv. þingmann segja að þessi aðgerð nú hjá ríkisstjórninni sé móðgun við íslensku þjóðina vegna þess að við erum að fara með þróunaraðstoðina niður í 0,23% af vergum þjóðartekjum. Það munar 0,02 prósentustigum sem við erum hærri en þegar hv. þingmaður var sjálfur fjármálaráðherra.
Virðulegi forseti. Svona rangfærslur verður að kæfa í upphafi þegar þær eru sagðar svo að vitleysan haldi ekki áfram inn í nóttina og langt fram undir jól.