fjárlög 2014.
Virðulegur forseti. Það er alrangt og beinlínis blekkingar af hálfu virðulegs þingmanns að fólk með miðtekjur njóti eitthvað þessara skattalækkana. Það eru bara blekkingar. Þetta er lækkun á miðþrepinu sem kemur fyrst og fremst þeim til góða sem eru í hæsta þrepinu. Það eru 0,8% af launabilinu í miðþrepinu sem þýðir að það fer ekki að skila sér að neinu verulegu marki fyrr en fólk er komið efst í miðþrepið. Fólk með 350 þús. kr., sem eru miðlaunin í landinu, fær 800 kr. út úr þessu á mánuði, 0,8% af 100 þús. kr. sem það er með í miðþrepinu. Maðurinn sem er í hátekjuþrepinu fær 0,8% af öllu miðþrepinu, þ.e. á fjórða þúsund krónur, fjórfalt meira. Þessi skattalækkun er gagngert hönnuð til þess að gagnast best fólki með meira en millitekjur og svo hátekjur. Hún kemur ekkert til þeirra sem eru með lægstu launin og meðaltekjurnar.
Ég spyr hv. þingmann: Er það ekki sanngirnismál að venjulegt vinnandi fólk, ekki bara á lægstu töxtunum, heldur líka með þetta á bilinu 300–400 þúsund sem eru hin venjulegu laun í landinu, (Forseti hringir.) fái notið þessa í einhverju?