fjárlög 2014.
Forseti. Ég þakka kærlega svörin. Ég var einmitt að leita eftir ummerkjum í fjárlagafrumvarpinu um eitthvað sem mundi að einhverju leyti koma til móts við þá sem eiga sér svo fáa talsmenn. Ég er hjartanlega sammála þingmanninum um að það er nauðsynlegt að hækka í krónutölu lægstu launin. Við þurfum jafnframt að fara í enn meiri samfélagslega umræðu um að setja ekki einhverja stimpla á fólk, t.d. að það sé sjálfskaparvíti að búa við fátækt. Við eigum aftur á móti að reyna að nýta okkur þekkingu og reynslu t.d. annarra þjóða til að gera ekki sömu mistök og hafa verið gerð víða í kringum okkur eins og var gert til að mynda í Finnlandi á sínum tíma.
Ég vildi gjarnan heyra betur af þeim tillögum sem (Forseti hringir.) hv. þingmaður kom að í þessu stutta andsvari. (Forseti hringir.) Ég geri mér grein fyrir að hann getur kannski ekki farið djúpt í það.