143. löggjafarþing — 37. fundur,  14. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[11:23]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég orðaði það einmitt þannig þegar við komum inn á sumarþingið, og það hefur að mörgu leyti, sérstaklega í sjálfu í frumvarpinu, verið staðfest enn frekar, að gríðarleg breyting hefur orðið á hugmyndafræði með nýrri ríkisstjórn. Það er aftur horfið til þess forms sem var fyrir hrun, þ.e. þess sem leiddi okkur að hluta til í hrunið. Þess vegna sló það mann mjög hvernig forgangsröðunin var og skilaboðin sem voru gefin í byrjun. Það kom mér á óvart. Þegar við erum að tala um ýmsa skatta, það var létt á eða reynt að liðka til fyrir meðal annars ferðaþjónustunni vegna þess að það var komið hágengi þá á undan og menn voru að vandræðast með að erfitt væri að fá ferðamenn til landsins. Þess vegna lækkuðu menn virðisaukaskatt úr 14% í 7%. Síðan hrynur gengið, næstum 50%, og við fáum mikla aukningu á ferðamönnum, mikið auglýsingaátak o.s.frv. Þá þorum við ekki að fara aftur í það sem var áður. Við lækkuðum gjöld á bílaleigubílum og hjálpuðum mönnum að komast í gegnum erfiðleikana þar. (Forseti hringir.) Svo var allt farið til fjandans þegar átti að fara til baka til ástandsins sem var áður. Þessi ríkisstjórn er ekki að breyta því.