fjárlög 2014.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbjarti Hannessyni fyrir þessi svör. Ég er með aðra spurningu til hans varðandi greiðsluþátttökuna. Hann nefndi hér áðan að hann teldi að greiðsluþátttökugjöld væru orðin of há í heilbrigðiskerfinu og þá er spurningin: Hvernig sér hann fyrir sér að þessi gjöld eigi að vera? Nú hefur verið mikið misræmi í þeim til þessa, þau eru mismunandi há eftir því hvaða þjónustu fólk er að leita eftir. Hvar liggja mörkin hjá honum varðandi gjöldin? Það liggur líka fyrir, má segja, að greiðsluþátttaka sé jákvæð að því leyti að þeir sem þurfa ekki raunverulega þjónustu heilbrigðiskerfisins leita þá síður í þetta kerfi, þannig að það er bæði gott og slæmt í því. En ég vil gjarnan vita hvar hv. þingmaður sér mörkin í þessu.