143. löggjafarþing — 37. fundur,  14. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[12:29]
Horfa

Björt Ólafsdóttir (Bf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir svarið. Ég held að margir vilji vinna að þessum málum með hv. þingmanni og flokknum hennar. Við í Bjartri framtíð erum með svipað kerfi sem heitir „heimasidan.is“ þar sem við leitum í grasrótina. Hver sem er getur komið með athugasemdir og pælingar sem fara svo í gegnum kosningakerfi og geta endað á Alþingi sem tillaga. Þar er líka grundvöllur.

Aðeins að þessari fátæktarskýrslu. Mig langar að nefna hér að hv. velferðarnefnd hefur tekið vel í það, allir sem einn þar, að fjalla um hana. Þá sjáum við hvert framhald þeirrar vinnu getur orðið á Alþingi.