143. löggjafarþing — 37. fundur,  14. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[15:00]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að nauðsynlegt sé að fá nánari upplýsingar um þessi fyrirhuguðu spítalagjöld eða sjúklingaskatta undir umræðunni og treysti því að stjórnarliðar komi hér upp og svari því til að mynda hvort innritunargjaldið nær líka til gjörgæslunnar og hvernig menn hafa þá hugsað sér að standa að innheimtu á því.

Ég vildi líka spyrja hv. þingmann um skráningargjöldin sem heita svo og er nú verið að hækka öðru sinni með stuttu millibili. Í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar — það er svona thatcherískur meiri hluti hér í ríkisfjármálum sem kunnugt er, sem vitnar til Margrétar Thatcher og hefur mikinn metnað í því að fá báknið burt eins og það heitir á þeirra tungumáli — eru þau kölluð skólagjöld. Fjallað er um að það að hækka þessi gjöld geti orðið til þess að auka árangur nemenda. Ég vildi spyrja hv. þingmann hvort hann telji að hér sé verið að taka skref til þess einfaldlega að breyta þessum skráningargjöldum í skólagjöld sem mæti kostnaðinum við námið að fullu og gjörbreyti þá okkar skólakerfi.

Sömuleiðis, af því að þingmaðurinn nefndi lögregluna, þá vekur athygli sá niðurskurður hjá Lögregluskólanum sem kemur fram nú. Ég vil spyrja hvort þingmaðurinn kunni einhverjar skýringar á því og hvað hann telji orsaka það að hv. þingmenn stjórnarliðsins fylgja ekki sinni eigin samþykkt um uppbyggingu lögreglunnar í landinu, hvaða kraftar séu þar að verki.