143. löggjafarþing — 38. fundur,  16. des. 2013.

áframhald aðildarviðræðna við ESB.

[15:23]
Horfa

Róbert Marshall (Bf):

Virðulegur forseti. Ásýnd Íslands í samskiptum við aðrar þjóðir þarf að vera skýr. Það þarf að vera á hreinu hvaðan við komum og hvert við erum að fara þó að það megi skilja á hæstv. forsætisráðherra þegar rætt er um Evrópusambandið að við séum ekki að fara neitt.

Sú óskýra staða sem upp er komin og nú ríkir í sambandi Íslands og Evrópusambandsins er afleiðing þeirrar stefnu sem ríkisstjórnin hefur fylgt síðustu sex mánuði. Gert er hlé á viðræðum, samninganefnd er leyst upp, frekari styrkir eru afþakkaðir og þegar Evrópusambandið tekur sínar eigin ákvarðanir er það harmað og rekin upp ramakvein.

Fátt er svo með öllu illt. Við í Bjartri framtíð erum ánægð að því leyti með þá stöðu sem nú ríkir að ekki er búið að slíta viðræðunum. Nýr þingmeirihluti gæti á kjörtímabilinu jafnvel tekið viðræðurnar upp og haldið þeim áfram þar sem frá var horfið. Ég vil spyrja hæstv. forsætisráðherra: Er þetta ekki sameiginlegur skilningur okkar á þeirri stöðu sem upp er komin? Það er enn þá, með leyfi: Afsakið, hlé, en ekki búið að ljúka útsendingu.

Það er mikilvægt að við fáum þetta á hreint. Svo langar mig til þess að spyrja hæstv. forsætisráðherra um framtíðarsýnina: Hvað líður úttekt Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands á stöðu Evrópusambandsins? Er ekki ljóst að í kjölfar þess að hún lítur dagsins ljós verður tekin ákvörðun um það hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla verður haldin um það hvort haldið verði áfram samningum við Evrópusambandið?