143. löggjafarþing — 38. fundur,  16. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[16:20]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Jú, ég er mjög undrandi yfir því að sömu hv. þingmenn og komu fram með tillögu sem þeir tóku í raun upp úr niðurstöðum skýrslu hins þverpólitíska starfshóps um jöfnun húshitunarkostnaðar á köldum svæðum frá því í desember 2012, treysti sér ekki leggja til að að lagðir verði 10 aurar á hverja framleidda kílóvattstund í landinu, sem mundi skila sér í innbyrðis jöfnun hjá öllum notendum í dreifingu á rafmagni.

Ég hef svo oft orðið hissa í þessum efnum þannig að ég er hætt að verða hissa og það kemur mér því kannski ekki á óvart að þarna er enn eina ferðina verið að hlífa stórfyrirtækjum sem maður hefði nú haldið að gætu lagt eitthvað af mörkum, stóriðjan sem fengið hefur raforku á gjafverði frá þessari þjóð í gegnum árin. Hún hefur fengið niðurgreitt rafmagn til sín á kostnað heimilanna í landinu. Stórkaupendum, álverum og stóriðju er hlíft en dreifa á kostnaðinum á heimili og önnur fyrirtæki í landinu, eins og ég skil það.

Auðvitað kallar það á togstreitu þegar menn eru ekki látnir sitja við sama borð. Þá er auðvitað hætta á því að upp komi einhver togstreita milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis, eins ömurlegt og það er þegar menn setja sig í þær stellingar. Ef lagt hefði verið til gjald á hverja framleidda kílóvattstund og það hefði jafnast út á alla hefði ekki verið hægt að gagnrýna það því að það hefði verið eðlileg ráðstöfun. Mér fannst þessi starfshópur skila mjög skynsamlegum og góðum tillögum, en svo virðist sem hv. þingmenn stjórnarflokkanna hafi skipt snögglega um skoðun. Mér þætti gaman vita hvað hafi breytt skoðun þeirra í þessum efnum.