fjárlög 2014.
Virðulegi forseti. Ég tek undir það með hv. þingmanni. Hv. allsherjar- og menntamálanefnd sem og hv. fjárlaganefnd hafa fengið boð um að koma til Bandalags íslenskra listamanna þar sem það leggur einmitt áherslu á þetta líka og telur að það sé eitthvað sem eigi að leggja áherslu á. En það kemur nefnilega fram í frumvarpi til fjárlaga, um stefnuhorfur, varðandi framkvæmdir álversins í Helguvík, eða ígildi þess, að þær hefjist árið 2014 og verði svo komnar á fullt skrið 2015. Ég tel því að töluverður veikleiki sé í þessu fólginn.
Af því að hv. þingmaður ræddi aðeins um utanríkisráðuneytið, niðurskurðinn, útgerðina og allt það langar mig að spyrja, af því að það er nefnilega álíka mikil aukning til ríkisstjórnarinnar og niðurskurðurinn er hjá utanríkisráðuneytinu, hvort hún sé sammála mér í því að forgangsröðunin geti tæplega talist rétt fyrir þjóðina.
Svo líka þetta, heldur hún að útgerðin sé sammála því (Forseti hringir.) að láta presentera sig, með leyfi forseta, með þeim hætti að vera stillt upp sem svona aðila sem vill ekki leggja af mörkum?