fjárlög 2014.
Virðulegi forseti. Það er margt að ræða. Hvað varðar heilbrigðiskerfið og svokölluð komugjöld þykir mér það heldur hart. Ég hafði bundið vonir við að hæstv. ríkisstjórn mundi sjá að sér varðandi legugjöldin sem áttu ekki að skila það miklum peningum í ríkissjóð að það borgaði sig að kynna til sögunnar nýja tegund af gjaldi, í það minnsta ekki að mínu mati.
Þegar ég lít yfir allt þetta mál stendur einhvern veginn alltaf eftir sú staðreynd að staða ríkissjóðs hefur batnað mjög mikið og mjög hratt eftir hrun. Það er að mínu mati algjörlega ótrúlegt. Ég hefði aldrei trúað því á sínum tíma að svona vel mundi ganga og þótt það sé fullt af vandamálum til staðar, gnægð af þeim, eru þau mjög lítil og væg miðað við það sem maður hefði haldið.
Nú veit ég að mikið af fólki hefur flutt úr landi eftir hrun. Ég flutti sjálfur úr landi rétt eftir hrun og ekkert endilega af efnahagslegum ástæðum heldur var frekar leiðinlegt andrúmsloft hérna vegna þess að það ríkti nær eintóm bölsýni. Menn töluðu um tapaðan áratug, glataðan áratug. Það áttu ekki að vera nein takmörk fyrir því hversu slæmt ástandið gæti orðið og það voru í sjálfu sér voða lítil takmörk fyrir því þegar allt kemur til alls.
Núna, einungis fimm árum seinna, lítur út fyrir, miðað við gengi síðustu hæstv. ríkisstjórnar í að minnka fjárlagahallann, að menn komi inn nokkuð nálægt núllinu. Við byrjuðum á 216 milljörðum kr. fyrir örfáum árum síðan og núna þótti ægilegur skandall að það yrðu um 30 milljarðar, sem það er almennt ef við tölum um stöðu ríkissjóðs, hallinn á ekki að vera 30 milljarðar en hann á enn síður að vera 216 milljarðar. Það er magnað að þetta hafi gengið svona vel. Ég hef haft ansi margar mjög barnalegar skoðanir í gegnum tíðina, enda var ég barn fyrir ekki svo löngu síðan. Ég trúði því alltaf að það þyrftu að skiptast á vinstri og hægri stjórn. Það þyrfti hægri til þess að laga fjárlagahallann og vinstri til að viðhalda félagslegum réttindum, heilbrigðiskerfi, menntakerfi og þvíumlíku. En ég verð að segja, eins og ég nefndi áðan í andsvari við annan hv. þingmann, að hægri maðurinn í mér og vinstri maðurinn í mér rífast mikið þessa dagana vegna þess að ég sé ekki betur en að hinni svokölluðu vinstri stjórn á síðasta kjörtímabili hafi gengið ótrúlega vel að minnka þennan halla, vissulega vonum framar, miðað við það sem ég taldi hægt á sínum tíma.
Hér er margt að ræða, til að mynda desemberuppbótin. Mér skilst á hv. þm. Ögmundi Jónassyni að desemberuppbót hafi tíðkast frá hruni, í það minnsta. Ég verð að segja að eftir atkvæðagreiðsluna um það atriði stóð ég sjálfan mig að því í fyrsta skipti að vera raunverulega sorgmæddur. Ég var raunverulega sorgmæddur vegna þess að þetta hefði getað verið öðruvísi og það hefði verið svo fallegt. Það hefði verið fallegt ef einn hv. þingmaður stjórnarinnar eða stjórnarþingmaður hefði smellt á já og aðrir kannski fylgt í kjölfarið. Það hefði verið fallegt, ég hefði viljað sjá það. Því miður var það ekki svo en öll nótt er ekki úti enn, við sjáum hvað gerist í kjölfarið.
Það er fleira sem mig langar að nefna en síðustu hæstv. ríkisstjórn og desemberuppbótina. Ég tók eftir því í breytingartillögum hv. fjárlaganefndar að gefið er rækilega í þegar kemur að Persónuvernd. Ef ég skil rétt voru fjárframlögin til Persónuverndar um 58,1 milljón árið 2012 og 60 milljónir 2013 og nú á að hækka framlagið um 28 miljónir sem er nær helmings aukning. Það gleður mig mjög mikið að sjá að það hafi gengið í gegn. Ég þakka hv. fjárlaganefnd fyrir þá tillögu og vænti þess að það gangi í gegn. Ég vil þó líka vekja athygli á því að það þurfti eiginlega að verða stórslys áður en þetta kom til.
Ég varaði við því í ræðu minni 19. nóvember 2013 að það stefndi í óefni og væri í raun og veru komið í óefni þegar kemur að Persónuvernd vegna þess að við látum eftirlitshlutverkið sitja á hakanum. Við það tilefni vil ég nefna að það eru fleiri stofnanir sem þarf að sinna vel til þess að forðast stórslys eins og varð í Vodafone-málinu eða Vodafone-hneykslinu, og þá vil ég sérstaklega nefna Ríkisendurskoðun.
Ég veit að á síðasta kjörtímabili varð trúnaðarbrestur milli Ríkisendurskoðunar og hv. fjárlaganefndar og ég veit að mikið er unnið í því að byggja upp trúnað aftur og sé ekki betur en að það sé að takast alveg sæmilega. Ég tek eftir því að í breytingartillögum hv. fjárlaganefndar er 25 milljónum bætt við sem er auðvitað skárra en ekkert en er hins vegar lítið af því sem Ríkisendurskoðun þarf. Ég man ekki alveg nákvæmlega hvað hún fær samkvæmt frumvarpinu, hvort það eru 430 milljónir, það eru um 400–500 milljónir og því ljóst að þótt tillagan um að hækka framlögin um 25 milljónir sé vissulega 25 milljónum meira er það hlutfallslega ekki mikið. Ég vil vekja hv. þingmenn til umhugsunar um að Ríkisendurskoðun telur sig í dag ekki geta haft eftirlit með gæðum hugbúnaðar og tölvubúnaðar hjá ríkinu, hún hafi ekki burði til þess. Auðvitað er ekkert hægt að ausa endalaust peningum í allar eftirlitsstofnanir, ég geri mér grein fyrir því. Ég vildi samt vekja máls á þessu því að meira þarf að gera áður en í frekara óefni stefnir. Að sjálfsögðu þarf alltaf meiri og meiri peninga hér og þar o.s.frv.
Einnig langar mig að nefna eitt vegna þess að það hefur setið svolítið í mér og varðar hið margumtalaða veiðigjald, sem ég er persónulega orðinn hálfþreyttur á að ræða. Svo ég segi alveg eins og er hef ég ákveðinn skilning á því að þær upplýsingar hafi ekki legið fyrir sem voru nauðsynlegar til þess að rukka veiðigjaldið, en jafnvel ef ég sætti mig við þau rök finnst mér skrýtið að engin sýnileg vinna hafi verið lögð í að veita Fiskistofu eða Hagstofu þær heimildir sem þurfti til þess að safna þeim upplýsingum. Í Hagstofumálinu í sumar virtust voðalega lítil takmörk vera fyrir því hvaða upplýsingar máttu fara til Hagstofu. Mér þykir það hálfkaldhæðnislegt og benda til þess að ekki hafi verið neinn raunverulegur áhugi á því að laga þetta vandamál heldur fyrst og fremst á því að einfaldlega skera það af og henda því út í sjóinn, ef svo mætti að orði komast.
Það er margt sem maður lærir við að standa í ríkisfjármálum. Eitt af því sem mér finnst alveg kostulegt og skil ekki hvernig í ósköpunum fólk sættir sig við varðar nefskattinn til Ríkisútvarpsins. Hann verður núna og á að vera 3,9 milljarðar eða það sem er rukkað í gegnum nefskatt — og þetta er mest óþolandi form skattlagningar sem til er, það tekur ekkert tillit til efnahags, tekur ekki tillit til þeirra þátta sem venjulega ákvarða skattlagningu, þ.e. tekna, neyslu og annars — en Ríkisútvarpið fær einungis 3,5 milljarða. Síðan stöndum við hér, hv. þingmenn og almenningur, og gagnrýnum Ríkisútvarpið mjög harðlega fyrir að þurfa að segja upp fullt af starfsfólki. Kannski er eitthvað að aðferðinni þar sem mætti gagnrýna en í raun og veru skil ég stjórn Ríkisútvarpsins mjög vel ef hún kastar ábyrgðinni á okkur á hinu háa Alþingi því að hér liggur ábyrgðin.
Hér rukkum við landsmenn um 3,9 milljarða til þess að þeir fari í Ríkisútvarpið en síðan látum við einungis 3,5 milljarða í Ríkisútvarpið. Fyrir mér eru það hrein svik, það er óheiðarlegt. Ég hef ekki viljað kveða svo sterkt að orði í fyrri ræðum um efnið en ég geri það nú. Því meira sem ég hugsa um þetta því meira pirrandi finnst mér það vegna þess að þetta er svo augljóst, þetta er borðleggjandi, þetta er algjörlega gegnsætt og það rífst enginn um það. Það er enginn ágreiningur um að svona sé þetta, það virðist ekki einu sinni vera raunverulegur ágreiningur um að þetta beri að laga, það er meira um þögn úr öllum áttum nema þeirri um að þetta beri laga. Ég velti því fyrir mér hvort það verði ekki gert eða nefskatturinn alla vega lækkaður frekar en að við rukkum 3,9 milljarða en látum aðeins 3,5 til Ríkisútvarpsins. Það er einfaldlega ekki rökrétt og stenst enga skoðun.
Það er fleira, það er mun fleira. Ég tók eftir öðru sem eru framlög Íslands til þróunaraðstoðar. Það er málefni sem má sjálfsagt ræða vítt og dreift en ég tók eftir því í greiningu í nefndaráliti að Ísland virðist hafa fengið meiri stuðning erlendis frá en Ísland leggur sjálft af mörkum. Mér finnst það alveg ótrúlegt. Stundum er Ísland kallað bananalýðveldi af svartsýnu fólki og mér þykir kostulegt að hátæknivædd þjóð sem á ekki í neinum teljandi vandræðum miðað við lönd sem þurfa í alvörunni á slíku fjármagni að halda hafi ekki manndóm í sér til þess að greiða að minnsta kosti jafn mikið út og hún hefur fengið. Ísland er ekkert þriðja heims ríki. Uppgangurinn hérna á 20. öld var auðvitað ótrúlegur og mér finnst við skulda heiminum. Mér finnst ótrúlega kaldhæðnislegt að við skulum eiga við hefðbundin vandamál að stríða þegar kemur að fjármálum, þ.e. hvað við ætlum að hafa háa skatta og hvar við ætlum að leggja út fé og slíkt, og höfum allan tímann verið að græða á þróunaraðstoð. Mér finnst það algjörlega „absúrd“ svo ég segi ekki meira. Jafnvel þótt það væri einungis til þess að friða samviskuna ættum við að gefa í í þessu, að minnsta kosti ættum við ekki að lækka framlagið.
Mér skilst að framlagið lækki úr 0,26% af vergri landsframleiðslu í 0,21%, en við höfum skuldbundið okkur með alþjóðasamningum um að vera með það í 0,7%. Að lækka framlagið finnst mér fyrir neðan allar hellur, sérstaklega ef við höfum samið um að hafa það öðruvísi, að hafa það 0,7% af vergri landsframleiðslu. Kannski gætum við ekki hoppað upp í það sisvona og alveg strax, gott og vel, en við ættum í það minnsta ekki að lækka það heldur reyna að láta það halda sér, láta það ekki versna. Mér finnst að þegar skoðaðar eru tölur, einkum í fjármálum, sé ekki nóg að hugsa hver staðan sé núna heldur sé mikilvægt að spyrja í hvað stefni. Mér sýnist því miður stefna okkar í þróunaraðstoð vera í ranga átt, ekki í rétta átt. Ef hún væri alla vega á sama striki og væri ekki að fara lengra frá markmiðinu væri ekki ástæða til þess að eyða miklum tíma í það hér.
Þetta minnir mig óneitanlega á það sem ég nefndi í upphafi ræðu minnar um hallann á ríkissjóði. Hann hefur skánað á hverju einasta ári frá hruni og þó nokkuð mikið, alveg merkilega mikið. Þess vegna hugguðu tölurnar mig svolítið. Þegar ég heyrði 30 milljarða halli fyrst fannst mér það heldur hart en það er skömminni skárra en 80 milljarða halli og hvað þá 216 milljarða halli. Ég sé ekki að í raun og veru eigi að víkja mikið frá þeirri stefnu sem var tekin hér á síðasta kjörtímabili. Eins og ég hef oft ítrekað í ræðu finnst mér ekki gott að vera kallaður ýmist vinstri maður eða hægri maður, en ég sé ekki betur út frá tölunum sem liggja fyrir framan mig en að þessi vinstri stjórn hafi gert nokkuð vel miðað við það sem hún fékk að spila úr, bara mjög vel.
Það skiptir í raun og veru engu máli hvað okkur finnst um fræðilegar hugmyndir um það hvernig eigi að haga ríkisrekstrinum því að tölurnar tala sínu máli. Auðvitað voru þetta erfiðar ákvarðanir, í raun og veru alveg ómögulegar ákvarðanir og sérstaklega fyrir vinstri sinnað fólk sem vill kenna sig við aukin fjárframlög til heilbrigðiskerfisins. Ég vil þakka síðustu ríkisstjórn fyrir kjarkinn sem þurfti því að sama hvað fólki finnst um ákvarðanirnar þurfti kjark til að fara í þessar aðgerðir. Það er ömurlegt að þurft hafi að ráðast í þær en um leið er rétt að minnast á að árið 2013 var fyrsta árið sem ekki þurfti að skera niður í heilbrigðismálum. Það er alveg nýtt að ekki hafi þurft að skera niður í heilbrigðismálum frá hruni. Það er ekkert sjálfsagt að það sé hægt að stæra sig af því miðað við hvað gekk á hér með 216 milljarða kr. halla.
Þegar við tölum um þennan 216 milljarða kr. halla er mikilvægt að við minnum okkur á hvaðan sá halli kemur. Hallinn er afleiðingin af hinu svokallaða hruni árið 2008. Ef við spyrjum okkur hvers vegna hrunið varð þá varð það í einu orði sagt vegna ábyrgðarleysis. Ég persónulega vil meina, þótt ég óttist pínulítið að móðga bæði þing og þjóð, að það sé öllum á Íslandi að kenna. Ég held að það sé þinginu að kenna, ég held að það sé fyrrverandi ríkisstjórn að kenna, ég held að það sé alþýðunni að kenna, ég held að það sé vinnumarkaðnum að kenna, bönkunum að kenna, öllum. Ég held að landið allt hafi hreinlega verið of ungt og vitlaust í fjármálum til þess að kunna að haga sér í samræmi við þær aðgerðir sem var farið í hér snemma á 21. öldinni og seint á þeirri síðustu, þ.e. einkavæðingu bankanna og hönnun peningakerfisins sem var hérna.
Mér finnst óþægilegt að vera kallaður hægri maður eða vinstri maður eða að sá einfaldi ás sé notaður um þá mörgu og flóknu hluti sem þarf að taka tillit til þegar við tölum um ríkissjóð eða efnahaginn. Ef við ætlum að fara í einhverjar skotgrafir um vinstri og hægri eða hvort við viljum það sem er gott fyrir fólkið, hvort við viljum það sem er gott fyrir efnahaginn eða að atvinnulífið blómstri eru svo margar spurningar sem komast ekki inn á þennan ás og er einfaldlega ekki hægt að lýsa með af eða á, hægri eða vinstri, rautt eða blátt, upp og niður, svart eða hvítt, já eða nei. Það er ekki svona einfalt. Það er miklu fleira sem ákvarðar lögmæti og skynsemi á bak við hverja aðgerð en hvort hún telst til félagshyggju eða einstaklingshyggju, sem eru nota bene ekki eini sinni það nákvæm orð ef við ætlum að fara í hægri, vinstri vegna þess að það er til fullt af einstaklingssinnuðum vinstri mönnum og það er til fullt af félagssinnuðum hægri mönnum. Það fer eftir því hvað maður er að tala um hverju sinni og einkum og sér í lagi þegar kemur að peningakerfinu sem sá sem hér stendur stúderaði aðeins — nokkuð mikið reyndar — fyrir hrun. Ég sé mjög lítinn hægri eða vinstri vinkil á peningakerfinu og ég sé sömuleiðis litla umræðu um peningakerfið hér á þingi. Hvernig ætlum við að hafa peningakerfið? Mér heyrast allir sem tala um peningakerfið, með örfáum undantekningum, ýmist vera hugmyndasnauðir þegar kemur að því hvað beri að gera, hvernig þetta eigi að vera eða svokallaðir öfgamenn sem vilja kannski fara aftur í aðra staðla eða eitthvað því um líkt.
Eftir stendur að ég hef í raun og veru aldrei heyrt talað um peningakerfið út frá hægri eða vinstri sjónarmiði. Það er kannski það gömul umræða að ég hef ekki rótað nógu langt aftur í söguna til þess að kynnast henni almennilega, en það er ekki spurning um hægri eða vinstri. Tökum eitt dæmi: Það að 13% vextir séu á Íslandi á meðan það eru 2 eða 3% vextir erlendis er ekki spurning um hægri eða vinstri heldur spurning um einfalda stærðfræði. Þetta átti að vera augljóst fyrir árið 2008 en var það ekki. Ég vil meina að það sé meðal annars vegna þess að hin hæstvirta íslenska þjóð er mjög ung þegar kemur að fjármálum. Við stofnuðum ekki hlutabréfamarkað fyrr 1985 eða 1986, mig minnir að það hafi verið um það leyti, og við kunnum ekki alveg að fara með þessi kerfi. Þeim mun mikilvægara er að við gleymum ekki eftirlitsstofnununum sem þó spyrja spurninga eins og: Er nógu mikið fjármagn á bak við þessa fjárfestingu til að hún standist? Farið þið eftir þessum og þessum reglum? Oft er ekkert mál að fara eftir reglunum svo lengi sem einhver nennir að spyrja. Oft þarf ekkert meira en að spyrja og þá kemur svarið mjög auðveldlega.
Því miður gleymdist þetta fyrir hrun og að mínu mati er það ástæðan fyrir því að hér myndaðist bóluástand. Ég óttast að það gerist aftur ef við sofnum á verðinum og pössum ekki að eftirlitsstofnanir okkar á borð við Persónuvernd, Ríkisendurskoðun og umboðsmann Alþingis séu nógu sterkar til þess einfaldlega að spyrja spurninga, ekki einu sinni erfiðra spurninga, ekki einu sinni nýrra og hugmyndaríkra spurninga heldur klassískra og mjög dæmigerðra spurninga eins og: Er skynsamlegt að borga út 13% vexti af fjárfestingum sem byggja á 4% vöxtum? Nei, það er það ekki. Það er ekki hægri eða vinstri spurning, það er ekki spurning um verðmætamat, það er spurning um blákaldar tölur, það er spurning um stærðfræði.
Það sama gildir þegar við tölum um Persónuvernd: Eru lykilorðin dulkóðuð? Það er ekki spurning um vænisýki, það er ekki spurning um öryggi. Þetta er einföld spurning og einfalt svar: Nei, þau eru ekki dulkóðuð. Þá dulkóðum við þau, ekkert mál. Það er ekkert mál að laga fullt af þessum vandamálum svo lengi sem spurninganna er spurt. En þeirra er ekki spurt ef við erum ekki með nógu mikið eftirlit. Þess vegna óttast ég ofboðslega mikið að fjárveitingar okkar, sérstaklega til Ríkisendurskoðunar, séu of lágar og geri það að verkum að við getum ekki forðast til dæmis annað hrun eða annað eins og gerðist fyrir skömmu síðan varðandi öryggiskerfi eins símafélags.
Nú er tíminn liðinn þannig að ég lýk ræðu minni.