störf þingsins.
Hæstv. forseti. Fyrst um það síðasta, hv. þm. Árni Þór Sigurðsson hefur nú staðið að furðulegri þjóðaratkvæðagreiðslu með furðulegum spurningum þannig að hann ætti að þekkja hvernig sú umræða getur þróast. Ég hef sagt fyrir mitt leyti varðandi þá spurningu: Það hefur engin ákvörðun verið tekin um þjóðaratkvæðagreiðslu. Slík ákvörðun þarf að vera tekin af þinginu en hún er ekki eini kosturinn í stöðunni. Það er líka hægt að gera það, sem ekki hefur verið gert, að senda erindi til Evrópusambandsins þar sem umsóknin frá 2009 er dregin til baka. Það er hægt að gera það. Það er líka hægt á Alþingi í fyllingu tímans að taka afstöðu til þess hvort menn vilja að það hlé sem ríkisstjórnin tilkynnti Evrópusambandinu um í júní á þessu ári eigi að vera til lengri tíma, ótímabundið. Það eru því nokkrir kostir í stöðunni.
Eins og hv. þingmaður veit er í gangi ákveðin vinna á vegum Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem lýkur með skýrslu sem á að birtast í þinginu fljótlega eftir áramót. Á grundvelli þeirra upplýsinga sem þar koma fram mun fara fram umræða í þinginu sem væntanlega mun enda með því að afstöðu þingsins verður leitað til þess hvaða leiðir eigi að fara í þessu sambandi.
Ég held að varðandi hinar spurningar hv. þingmanns sé óhætt að svara þeim neitandi. Íslensk stjórnvöld hafa ekki slitið viðræðunum. Hv. þingmanni er kunnugt um að Evrópusambandinu var tilkynnt um það að pólitískum og tæknilegum viðræðum yrði hætt, það yrði gert á þeim hlé, eins og það var orðað, og ekki haldið áfram að sinni. Það var ekki um formleg viðræðuslit að ræða og auðvitað, eins og hv. þingmaður veit, hefur heldur ekki verið um að ræða slíka formlega ákvörðun af hálfu Evrópusambandsins.