143. löggjafarþing — 39. fundur,  17. des. 2013.

störf þingsins.

[10:40]
Horfa

Þorsteinn Sæmundsson (F):

Hæstv. forseti. Síðan niðurstöður nefndar um skuldaleiðréttingu komu fram hafa ýmsir reynt að tala þær niður, m.a. hér í þessum sal, með ýmsu móti. Því er það mjög ánægjulegt þegar tvö alþjóðleg matsfyrirtæki telja að aðgerðirnar geti haft góð áhrif. Þá fagna ég sérstaklega því mati Moody's að lánshæfi Íbúðalánasjóðs hækki.

En það er ein rödd sem er ekki sammála þessum alþjóðlegu fyrirtækjum sem hefur látið í sér heyra undanfarið og það er rödd Seðlabanka Íslands. Það virðist vera þannig að Seðlabanki Íslands sé í einhverri vegferð sem ég skil ekki og þar á meðal hefur bankinn fundið þessum skuldaleiðréttingum ýmislegt til foráttu og í gær kom svo fram einn sérfræðingur bankans og lýsti þeirri skoðun að hér væri ekki hægt að leggja af verðtryggingu. Ég spyr mig á hvaða vegferð þessi banki er. Þetta gerist í kjölfar þess að hann lækkar ekki stýrivexti annan mánuðinn í röð. Ég velti fyrir mér hvort þessi stofnun valdi hlutverki sínu eða hvort rétt sé að breyta hlutverki hans vegna þess að mér finnst satt að segja ískyggilegt ef þessi höfuðstofnun efnahagsmála á Íslandi hefur ekki trú á því að við getum lagt af verðtryggingu og við séum dæmd til þess að vera um ófyrirséða framtíð í klóm hennar. Þetta þykir mér mjög alvarlegt, herra forseti, og umhugsunarvert.