143. löggjafarþing — 39. fundur,  17. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[12:01]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, það er sannarlega rétt hjá þingmanninum. Það er líka ástæða fyrir okkur þegar við horfum á björtu hliðar málsins að minnast þess að fyrri ríkisstjórn skildi þannig við gagnvart erlendum eigendum krónueigna hér í hagkerfinu og raunar líka gjaldeyris að lögin sem sett voru og tóku m.a. þrotabú föllnu bankanna inn undir höftin gera náttúrlega að verkum að ríkisstjórnin hefur full tök á málinu. Ef vel er á haldið er hægt að semja við þessa aðila og ná hagfelldri niðurstöðu sem ætti að geta skapað okkur tækifæri til að létta höftunum, að minnsta kosti að verulegum hluta.

Það er líka mikilvægt að ríkisstjórnin fari betur með þá stöðu en hún gerir, alveg eins og það er mikilvægt að hún fari betur með stöðuna (Forseti hringir.) í ríkisfjármálum en hún gerir.