fjárlög 2014.
Virðulegur forseti. Við ræðum fjárlagafrumvarp hæstv. fjármálaráðherra Bjarna Benediktssonar og kennir þar vægast sagt margra grasa. Fyrst af öllu held ég að sé rétt að nefna, í ljósi þeirrar áherslu sem hæstv. ríkisstjórn lagði í byrjun nýs kjörtímabils, að hún þyrfti að fá góðan tíma og öflugt og mikið svigrúm til að geta unnið þetta merka fyrsta fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, að sú breyting var gerð á þingskapalögum að ríkisstjórnin fékk svigrúm til að leggja frumvarpið og tengd frumvörp fram 1. október.
Það er skemmst frá því að segja að seinkun á framlagningu frumvarpsins, þ.e. um þrjár heilar vikur, leiddi ekki af sér frumvarp sem var markvissara eða nær því að vera tilbúið, ef svo má að orði komast, heldur þvert á móti kom pappír sem mjög fljótlega varð umræddur fyrir að vera frekar umræðugrundvöllur eða einhvers konar drög eða vangaveltur og voru bæði hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra þeirrar skoðunar — það eru a.m.k. þau orð sem voru höfð uppi við umræðuna — enda væri málið á þeim tímapunkti komið til þingsins, eins og sagt var.
Þó að frumvarpið væri þar með komið til þingsins held ég að ekki sé of mælt að segja að málin skýrðust ekki mikið framan af og lengi vel voru breytingartillögur sem komu fram teknar til baka jafnharðan í fjölmiðlaumræðu. Það var meira að segja þannig að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra svipti hulunni af breytingartillögunum í þætti í ríkissjónvarpinu á sunnudegi og hv. formaður fjárlaganefndar fylgdi því eftir af snerpu og þunga á mánudegi. Svo fóru að renna tvær grímur á menn á næstu dægrum á eftir. Það sem átti að verða niðurskurður á barnabótakerfinu var það ekki lengur. Þegar hæstv. forsætisráðherra var þýfgaður um það í þingsal kannaðist hann varla við annað en þarna væru getgátur á ferð. Það var náttúrlega, herra forseti, ekki góður svipur á því og hefði sjálfsagt rifið í í einhverjum samfélögum í kringum okkur sem við viljum stundum bera okkur saman við að menn væru tvísaga með jafn afgerandi hætti og þar kom fram.
Þetta lýtur allt saman að forminu, það snýst allt saman um verklagið og framvinduna en minna beinlínis um innihaldið og er þar ærið tilefni til umræðu.
Mig langar þess vegna fyrst að nefna að hv. formaður fjárlaganefndar talaði um þjóðarsátt í fjölmiðlum. Það er þannig með orð að þau geta verið dýr, það getur verið býsna mikil krafa um að í þeim sé innihald og sérstaklega þegar þingmaðurinn er með svo sterka stöðu í þinginu og afgerandi valdapóst sem formaður fjárlaganefndar. Hún fullyrðir semsé að það sé þjóðarsátt um fjárlög ársins 2014. Ég verð að segja að mér eiginlega krossbrá að hv. þingmaður skyldi nota það orðfæri. Hún segir í fjölmiðlum, með leyfi forseta:
„Við forgangsröðum í þágu fólksins í landinu öllu í grunnþjónustunni og þá sleppum við óþarfanum sem sumir kalla gæluverkefni fyrri ríkisstjórnar. Við náum að snúa af braut hömlulausra útgjalda í ríkisrekstri í það að skila hallalausum fjárlögum og meira að segja að skila örlitlum afgangi.“
Það er skemmst frá því að segja að þetta orðalag er þannig að menn hljóta að horfa til þess hvert innihaldið sé. Hver er innstæðan fyrir því að segja eitthvað af þessum toga?
Í framhaldi af þessum ummælum hv. þm. Vigdísar Hauksdóttur efndi fréttavefurinn Eyjan.is til skoðanakönnunar á meðal lesenda sinna um það hvort þeir væru sammála hv. formanni fjárlaganefndar. Í stuttu máli má segja að þessi könnun hafi leitt í ljós að þjóðarsátt er um það að hafna fjárlögum ríkisstjórnarinnar. Það liggur a.m.k. fyrir að í morgun, þegar um tæplega 2 þús. lesendur höfðu svarað könnuninni, svöruðu 80%: Því fer fjarri að fjárlög ríkisstjórnarinnar séu grundvöllur þjóðarsáttar. Minna en 10% eru sammála hv. formanni fjárlaganefndar. Það skyldi nú ekki vera að þar værum við að nálgast þá tölu sem flokkur hv. formanns fjárlaganefndar getur vænst að fá í kosningum sem koma jú aftur — það er ekki eins og hv. þingmaður talar stundum, að þær kosningar hafi verið þær síðustu í mannkynssögunni. Það koma nefnilega aftur kosningar og þá þurfa menn að standa klárir á orðum sínum og gerðum.
Virðulegur forseti. Er sátt um það að sjúklingar borgi gjöld fyrir að leggjast inn á spítala? Er sátt meðal sjúklinga um það? Er sátt meðal veikasta fólksins á Íslandi um það? Er sátt um að draga verulega úr framlögum til rannsóknarsjóða og alls sem heitir að örva fjölbreytt atvinnulíf? Er sátt um að slátra sóknaráætlun sem var byggð á gríðarlega mikilli þverpólitískri vinnu með sveitarfélögum um allt land þar sem þau komu að því í góðu og opnu samtali við stjórnvöld að forgangsraða þeim verkefnum sem þeim þóttu mikilvægust? Er þjóðarsátt um að slátra þeirri áætlun? Er þjóðarsátt um að hætta verkefninu Brothættar byggðir þar sem Bíldudalur, Breiðdalsvík, Skaftárhreppur og Raufarhöfn áttu að fá sérstakan stuðning til að niðurgreiða húshitun á viðkomandi svæðum? Er þjóðarsátt um það? Hvaðan kom sú þjóðarsátt? Ég hef ekki orðið vör við hana. Er þjóðarsátt um að borga ekki atvinnulausum desemberuppbót? Er þjóðarsátt um það? Hvar kom hún fram? Svo að maður fari út fyrir umræðuna um fjárlagafrumvarpið og horfi á stöðu umhverfis- og náttúruverndarmála; er þjóðarsátt um að nálgast fjögurra ára vinnu í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu til að koma á metnaðarfullri, nútímalegri löggjöf um náttúruvernd með því að henda þeirri vinnu með einu pennastriki? Er þjóðarsátt um það?
Herra forseti. Í Vikulokunum nú um helgina var að mörgu leyti ágætisumræða meðal annars um það yfirbragð stjórnmálanna sem við sjáum, bæði þetta fram lagða fjárlagafrumvarp og ýmis önnur tilþrif, til að mynda afturkalli náttúruverndarlaga. Andri Snær Magnason, rithöfundur og hugsuður, sagði: Svona gerist bara hjá Mussolini og þróunarlöndunum. Er einhver sem fílar að gera svona með einu pennastriki? Það er búið að henda þúsund mannárum af vinnu.
Við þurfum á því að halda að sýna sérfræðiþekkingu og sérfræðivinnu virðingu. Það á svo sannarlega við um vinnuna í aðdraganda nýrra náttúruverndarlaga. Það á svo sannarlega við um grundvöll sóknaráætlana og það á svo sannarlega við um fjárfestingaráætlun fyrri ríkisstjórnar. Í öllum þessum tilvikum er um að ræða breiðari og ítarlegri vinnu en við höfum yfirleitt í íslenskri stjórnsýslu leyft okkur að eyða tíma og starfskrafti í vegna þess að okkur fannst mikilvægt í ljósi rannsóknarskýrslu Alþingis, í ljósi hrunsins og þess áfalls sem Ísland varð fyrir að byggja traustan grunn undir ákvarðanatökur og undir framvindu og framþróun fyrir Ísland, fyrir íslenskt samfélag, fyrir íslenskt efnahagslíf, fyrir íslenskt atvinnulíf og jafnvel fyrir íslenska menningu, líka fyrir íslensk heimili sem stundum hefur verið látið eins og sé einkaréttur eins flokks að ræða. Heimilin búa nefnilega til samfélag. Þau verða ekki rofin úr sambandi við samfélag. Því er mikilvægasta varðstaðan fyrir heimilin í landinu varðstaðan um samfélagið, varðstaðan um velferðarkerfi okkar, menntakerfið okkar og síðast en ekki síst menninguna okkar, ekki vegna þess að menningin okkar sé stórbrotnari en önnur heldur vegna þess að hún er okkar og hún er pínulítið einstök og hún varpar sínum áherslum og sínum dráttum fram í menningarsamspil mannkyns og skiptir þess vegna máli.
Þetta fannst okkur í síðustu ríkisstjórn mikilvægt. Okkur fannst líka mikilvægt að reyna að jafna kjör. Við lögðum upp úr því að reyna að jafna kjör. Þarna fóru saman tveir stjórnmálaflokkar sem hafa báðir félagslegt réttlæti og jöfnuð að leiðarljósi og byggja raunar á þeirri hugsun. Það var töluverð kúnst að freista þess á sama tíma og við vorum að takast á við viðfangsefni sem var stærra en nokkur ríkisstjórn hefur þurft að glíma við fyrr og síðar að freista þess að auka jöfnuð í samfélaginu með þrepaskattkerfi og með því að leggja áherslu á að styðja við þá sem minnst hafa í samfélaginu. Við hefðum getað gert miklu betur. Við hefðum átt að gera miklu betur en við höfðum ekki forsendur til að gera allt sem við hefðum viljað vegna þess að það var óvenjulega þröngt í búi.
Það sem mér finnst raunalegast núna, herra forseti, er ekki það sem lýtur að lýðræðislegum grunni og umboði nýrrar ríkisstjórnar. Maður er náttúrlega alltaf súr að fá ekki fylgi, maður vill alltaf fá meira fylgi, sterkara umboð. Það sem mér finnst dapurlegt við þessa nýju ríkisstjórn, af því að hún hefur býsna mikinn slagkraft og sterkan meiri hluta í þinginu, er tuddagangurinn, þ.e. að virða ekki vinnu eins og fjárfestingaráætlunina sem snerist ekkert um hægri eða vinstri. Það er mikilvægt að hlúa að fjölbreyttum sprotum og það er ofsalega raunalegt að horfa ítrekað á það í fjárlagafrumvarpinu — ég veit ekki einu sinni hve oft, ég á eftir að koma því í verk að telja það — að það sem tilheyrir fjárfestingaráætluninni er nánast strikað út án þess að fara yfir hvað er á bak við það. Það er eins og það sé vélræn andstaða við það sem fyrri ríkisstjórn gerði. Við þurfum ekki á svoleiðis pólum að halda þegar um svo sterkan grunn er að ræða, þegar hugsunin er svona ítarleg. Ég fullyrði að grunnurinn undir fjárfestingaráætlunina snerist um opinberar framkvæmdir og rannsóknir og þróun, uppbyggingu innviða friðlýstra svæða og þjóðgarða og um nokkur fleiri verkefni. Þetta er allt saman mikilvægt, ekki bara eins og sumir hv. þingmenn hafa sagt vegna þess að þetta voru kosningaloforð fráfarandi stjórnarflokka eða ófjármagnað, eins og hv. þm. Unnur Brá Konráðsdóttir orðaði það, heldur vegna þess að við höfðum í einlægni trú á því að þetta væri gott fyrir Ísland.
Ég er raunar þeirrar skoðunar að það sé mjög mikilvægt þegar svona verkefni verða til að freista þess að ná um þau þverpólitískri samstöðu því að annars eigum við alltaf á hættu að slík boðaföll verði og vélræn viðbrögð sem eru svo vond. Ef ríkisstjórnin vinnur þetta eins og hún hefur gert með fjárfestingaráætlunina, tekur hana bara út eins og hún sé að leita lúsa, eins og það hljóti allt að vera vont af því að það tilheyrir fjárfestingaráætluninni, þá situr það eftir í þessu fjárlagafrumvarpi að maður finnur enga atvinnustefnu. Hver er atvinnustefnan? Hvert er markmiðið? Hvað vil ríkisstjórnin sjá? Hvar eru sprotarnir sem ríkisstjórnin vill hlúa að? Það er ekki bara þannig á Íslandi að undanfarin ár höfum við viljað hlúa að rannsóknum, þróun og sprotastarfsemi, allir freista þess í löndunum í kringum okkur, líka hægri stjórnir. Af hverju er það? Það er vegna þess að það er hluti af hinu græna hagkerfi. Það er ekki bara á Norðurlöndum, í Evrópu og á vettvangi Sameinuðu þjóðanna finna þjóðir heims sér leiðir til að ganga minna á auðlindir jarðar, umgangast þær með sjálfbærum hætti en geta samt viðhaldið og byggt upp velferð fyrir íbúana. Þetta er áskorunin sem mannkynið stendur frammi fyrir á nýrri öld. Þess vegna finnst mér svo óendanlega vont að við skulum ekki ná einu sinni samtali um þetta. Nú er ég að tala um fjárfestingaráætlanir.
Ég get líka talað um sóknaráætlanir landshluta, öldungis frábært verkefni. Hvað var svona frábært við það? Það var það að talað var við fólkið sjálft, fólkið sem var á vettvangi, fólkið sem vissi hvað kæmi þeirra byggðum best, hvernig væri best að forgangsraða. Sunnlendingar komu saman á Selfossi. Vestfirðingar komu saman á Ísafirði o.s.frv. Sveitarstjórnarmenn, atvinnurekendur, fólk úr verkalýðshreyfingunni, menntakerfinu, almenningur kom saman af því að fólk fann hvað var mikill þróttur í því á erfiðum tímum að vera kallað að borðinu til að búa til einhvers konar stemningu fyrir sameiginlegri framtíðarsýn.
Ég vona að hv. þingmenn muni eftir þeirri tilfinningu sem helltist yfir okkur öll í kjölfar efnahagshrunsins þegar við sögðum í minni hópum og stærri: Æ, ég vona að við lærum eitthvað af þessu — ég vona a.m.k. að við lærum eitthvað af þessu, að það verði einhver kraftur í því að fá nýja byrjun. Þannig var sóknaráætlunin hugsuð: Nú boðum við stefnumót um allt land. Lagt var upp með því að hugmyndirnar væru ekki pólitískt litaðar, að þær kæmu frá heimamönnum sjálfum, frá sveitarstjórnarmönnum úr öllum flokkum, frá atvinnulífinu. Áætlunin varð fólki býsna mikilvægt leiðarljós til framtíðar. Þess vegna finnst mér enn þá dapurlegra að þetta verkefni skuli líka verða fyrir barðinu á vélrænni andstöðu við allt sem heyrir undir fjárfestingaráætlun. Kannski er það pólitísk skammsýni af fyrrverandi ríkisstjórn að hafa sóknaráætlanirnar ekki beint undir viðkomandi liðum heldur sem hluta af fjárfestingaráætlun, það kann að vera.
Ég er eindregið þeirrar skoðunar að það sé betra ef við náum einhverri sameiginlegri framtíðarsýn. Það hafa auðvitað togast á ákveðin sjónarmið að því er varðar atvinnustefnu og lengi var deilt í þinginu um stuðning og andstöðu við svokallaða stóriðjustefnu og það voru mjög harðir pólar í þeim efnum. Við getum haldið þeim ágreiningi við og við getum passað upp á að hann gleymist ekki, en við hljótum að geta verið sammála um að það þarf að hlúa að sprotunum og það þarf að hlúa að rannsóknum og þróun. Það er ekki hægt að segja: Við höfum ekki efni á þessu núna, við ætlum að gera þetta seinna — vegna þess að við verðum að ná þessu utanumhaldi og rækta og næra vaxtarsprotana því að fólk hættir ekki að fá hugmyndir þótt niðurskurður sé í ríkisútgjöldum, fólk hættir ekki að þrá að vera skapandi og stíga kröftug skref inn í skapandi framtíð, það verður þannig áfram. Það er svo mikilvægt að stjórnvöld taki með einhverjum hætti þátt í því.
Stundum hefur verið sagt að mikilvægasta hlutverk og verkefni stjórnmálanna sé að gefa fólki von. Kannski er von of væmið, ég veit það ekki. Við getum a.m.k. sagt að það sé mikilvægt að gefa fólki einhverja framtíðarsýn eða a.m.k. verið sá vindur í seglin að fólk finni eigin framtíðarsýn svo að ég prófi að stíga í frjálshyggjufótinn. Ég mundi hafa áhyggjur af því í sporum stjórnarflokkanna núna hversu æpandi fjarvera framtíðarsýnarinnar er. Það kann að vera að mér yfirsjáist það því að hv. þingmenn stjórnarflokkanna og forusta fjárlaganefndar hafa verið iðin við að koma upp í ræðustól í þessari umræðu á ýmsum stigum og þá kemur þrástef. Þrástefið er: Hallalaus fjárlög — punktur. Það er eins og það sé orðið nær því að vera einhvers konar kirkja en pólitísk afstaða því að menn verða bjartir í framan einhvern veginn þegar þeir tala um þessi hallalausu fjárlög eins og þar með sé hægt að rökstyðja nánast hvað sem er. En hallalaus fjárlög eru bara spurning um að dálkarnir stemmi, svo þarf innihald og þar er pólitíkin. Það er sú umræða sem við höfum tekið hér undanfarna daga.
Við þessa umræðu um fjárlagafrumvarpið hefur ekki mikið verið rætt um umhverfis- og náttúruverndarmál, þ.e. þau sem lúta að fjárlagafrumvarpinu. Fyrri ríkisstjórn lagði áherslu á að setja verkefni í forgang sem lytu að því að byggja upp innviði friðlýstra svæða og þjóðgarða. Við vitum öll að það er nauðsynlegt og við höldum öll ræður um það algerlega þvert á flokka. Það er nauðsynlegt og ekki seinna en núna að gæta að uppbyggingu innviða friðlýstra svæða. Hvað þýðir þetta? Hvað þýðir uppbygging innviða friðlýstra svæða? Það þýðir að við byggjum svæði þannig upp, stundum með göngustígum, brúm, skiltum, klósettum, þessum manngerðu atriðum, til að svæðið þoli ágang, til að svæðið þoli ferðamennina sem um það ganga. Vandinn er svolítið sá að náttúran á sér ekki rödd, hún á ekki lobbíista. Það er enginn sem kemur og segir: Hey, það er enginn að sinna okkur neitt meira. Auðvitað eru náttúruverndarsamtök o.s.frv. en þau hafa ekki þann fjárhagslega þunga sem ég hef stundum kallað athafnafrekjur heldur þarf náttúran að búa við það að við tökum málstað hennar. Við þurfum að gæta að því að hún liggi ekki óbætt hjá garði, að hún fái einhverja málsvara. Nú er ég ekki að bresta í ættjarðarljóð eða eitthvað slíkt heldur er þetta líka mjög hörð staðreynd.
Ef við lendum í þeirri stöðu að eitthvert tiltekið friðlýst svæði sem er svona segull fyrir ferðamenn er komið í það ástand að svæðið er að missa verndargildið sitt — verndargildið er sem sagt matið þegar verið er að meta hvort svæðið eigi „skilið“ að vera verndað eða ekki þá er verndargildið lagt til grundvallar. Er þetta þannig svæði að það taki því að vernda það, það þurfi að gera það? — það sé svo mikill ágangur á svæðið, nefnum bara einhvern foss eða eitthvert hverasvæði eða slíkt, þar sem eru ekki þessir innviðir, þar sem við erum ekki með uppbyggða göngustíga, við erum ekki með neitt sem tryggir að svæðið þoli áganginn, hvað gerist þá? Smám saman verður þar drullusvað, svæðið verður óaðlaðandi og endar með því að missa ekki bara verndargildið heldur líka aðdráttaraflið. Þetta er raunveruleg hætta. Sem betur fer, og það er mjög spennandi, hefur ferðaþjónustan vaxið mjög mikið á Íslandi en við þurfum að gæta að því að við séum ekki í hefðbundnum íslenskum gullgrafaraham. Við þurfum að bera ábyrgð á því að Íslandi þoli 600 þús. ferðamenn, 700 þús. ferðamenn, 800 þús. ferðamenn o.s.frv. vegna þess að núna þegar ferðamannatímabilið teygir sig yfir stærri hluta almanaksársins fáum við í raun og veru meiri ágang á viðkvæmari tímum. Við fáum ágang á tímum þegar gróðurþekjan er þunn og svæði sem við getum búist við að þoli 1.000 manns um hásumar þolir kannski bara 100 í mars. Þetta er raunveruleiki og það sem menn eru að átta sig á í ferðamannaþjónustunni. Þótt við viljum lengja ferðamannatímann viljum við um leið gæta að því að við sitjum ekki uppi með ferðamenn sem koma um sumar og lenda í því að svæðið sem þeir hugðust heimsækja sé orðið skemmt og spillt. — Ég sé að hv. formanni Þingvallanefndar er eitthvað skemmt yfir þessari umræðu. — Það yrði náttúrlega töluvert flóknara mál.
Hér hefur hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra Ragnheiður Elín Árnadóttir talað um að það þurfi að gefa því tíma að finna fjármögnun og rekstrargrunn fyrir þessi svæði. Gott og vel, það þarf að gera það, en við megum engan tíma missa. Á árinu 2014 eru þessi svæði nánast alveg ófjármögnuð. Ég er þess fullviss að við tökum mikla áhættu með því. Við höfum svo sem ekki, eins og ég sagði, eytt miklum tíma hér í að ræða nákvæmlega þennan þátt. Þetta er partur af fjárfestingaráætluninni. Þarna er gríðarlega mikið af sumarstörfum, störfum iðnaðarmanna, verkafólks, landvarða o.s.frv. sem falla niður og til viðbótar erum við berskjaldaðri að því er varðar umgengni um þessi svæði.
Við vitum það, og ég vona að ég sé að tala inn í hjarta stjórnarflokkanna, að ef upplifun er góð, hvort sem það er þegar fólk fer á veitingastað, í verslun eða hvað það gerir, þá er ekkert víst að maður segi frá því. Maður getur kannski sagt frá því svona í leiðinni, maður gerir ráð fyrir því að þetta sé ánægjulegt. Ferðamenn sem koma til Íslands gera ráð fyrir því að það sé ánægjulegt og það dugir jafnvel þegar þeir koma heim að segja bara: Ég fór til Íslands — það var frábært. En um leið og þessi reynsla fer að verða erfið eða neikvæð á einhvern hátt þá er hætt við því að sú umræða fari hraðar til þeirra hópa sem við viljum að komi til landsins. Það er því býsna mikið undir í þessum efnum. Þetta ætti ekki að vera spurning um það hvort tölurnar eru í fjárfestingaráætlun eða hvort einhverjir hræðilegir náttúruverndarsinnar hafi verið í ríkisstjórn áður eða eitthvað slíkt heldur verðum við að taka utan um þetta mál. Það er mjög varhugavert að bæta hundruðum þúsunda við af ferðamönnum hér ár hvert á tiltölulega fáa afmarkaða staði og eiga það á hættu að þessir staðir glati verndargildi sínu og þar með aðdráttaraflinu. Þetta er raunveruleg umræða.
Ég vitnaði hér áðan í hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra þar sem hún segir að það sé nægur tími til að vinna einhverjar hugmyndir sem hafa verið til að mynda um náttúrupassa sem ég hef miklar efasemdir um að sé góð leið. Ég held raunar að virðisaukaskattur á ferðaþjónustu væri skýrasta leiðin. Það er mjög einföld leið. Við eigum það innheimtukerfi, við eigum virðisaukaskattskerfi og þurfum ekki að setja upp posa við hvern foss eða búa til eitthvert nýtt rukkunarkerfi. Kerfið sem við eigum sem er ágætt. Eða þá gistináttagjaldið eða gjald á flugmiða eða aðrar leiðir sem hafa verið ræddar. Ég held að þetta sé viðfangsefni þar sem við megum hreinlega engan tíma missa. Þetta hefur eins og hér kemur fram ekki verið rætt mikið í þessari umræðu.
Herra forseti. Ég get ekki látið hjá líða að nefna í lokin vegna þess að í fjárfestingaráætluninni er margt sem er ekki fjármagnað að sögn hæstv. ríkisstjórnar — það er eins og hér hefur komið fram þrástef í fjárlagafrumvarpinu, kemur örugglega 300–400 sinnum fyrir í þessum ágæta texta að fjárfestingaráætlun sé ekki fjármögnuð — þau undur og stórmerki að liður sem er ekki fjármagnaður og heitir græna hagkerfið er ekki fjármagnaður af því að hann er hluti af þessari „hræðilegu“ fjárfestingaráætlun. Hann er settur niður í ekki neitt og svo verður til nýr liður sem er allt í einu fjármagnaður upp á 190 millj. kr. í skúffu hjá hæstv. forsætisráðherra. Hvaðan koma þeir peningar? Það sem var ekki fjármagnað í næstu línu á undan er allt í einu fjármagnað þarna. Hvað stendur? „Græna hagkerfið“ — nú, þá er græna hagkerfið þarna, er það ekki? — „og verkefni tengd vernd sögulegra og menningartengdra byggða og fornleifa o.fl.“ Svo kemur hérna gríðarlega innihaldsríkur og magnaður texti sem er niðursoðin útgáfa af stefnuræðu forsætisráðherra. Setjið stefnuræðu forsætisráðherra í pott og sjóðið niður þangað til þið fáið þessar 15 línur. Þarna er stefna forsætisráðherra í 190 millj. kr. ófjármögnuðum potti sem hann er allt í einu með — til að gera hvað? Vernda þjóðargersemar, minjasöfn, fornleifar, húsafriðun, varðveita menningararfinn o.fl. Við skulum gæta að því að hafa alltaf „og fleira“.
„Gert er ráð fyrir að unnið verði að verkefnum tengdum vernd sögulegra byggða og minja og annarra forgangs- og áhersluverkefna hjá ráðuneytinu í samræmi við áherslu í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.“
Gott og vel. Ríkisstjórnin hefur fullan rétt á því að forgangsraða upp á nýtt og vera með öðruvísi áherslur en aðrir. Það er fínt, bara gott mál, en væri ríkisstjórnin þá til í að láta það heita það sem það heitir?
Hvað með græna hagkerfið? Það er ekki eitt orð um grænt hagkerfi í þessum texta. Þetta ófjármagnaða græna hagkerfi í næstu línu á undan, sem er að engu orðið, er allt í einu orðið af þessari stærstu, dýpstu og fyllstu skúffu Stjórnarráðsins. Ef þetta endurspeglar ráðdeild, hvar var þá hagræðingarhópurinn þegar þessi skúffa var innsigluð? Menn eru að tala um 240 milljónir í desemberuppbót á þessu ári sem ekki eru til peningar fyrir. Við verðum bara að horfast í augu við það að þessir peningar eru ekki til — eigum við að taka þá að láni? spyr fjármálaráðherra og það gneistar úr augunum á honum. Þarna fer stjórnmálamaður sem veit út á hvað leiðangurinn gengur. 190 millj. kr. fjárveiting á þennan nýja fjárlagalið hjá forsætisráðherra. Tók fjármálaráðherrann lán fyrir því? Þetta hefði dugað upp í 80–90% af desemberuppbótinni. Ef hæstv. forsætisráðherra hefði rausnast til að hvolfa úr skúffunni til þeirra sem þurfa á peningunum að halda, nei, þá eru ekki til peningar, þá er viðskilnaður fyrri ríkisstjórnar svo hryllilegur með 20 þús. millj. skrilljónir í halla og reka verður ríkissjóð hallalausan — þangað til kemur að forsætisráðherranum, þá gilda einhver önnur lögmál. Hvaða vinnubrögð eru þetta, herra forseti? Hvernig í ósköpunum geta stjórnarliðar fundið út úr því að þetta sé gott mál? Af hverju heitir þetta ekki það sem það heitir? Hluti af hvaða samkomulagi er þetta? Virðulegur forseti. Þetta er dekurpottur forsætisráðherrans sem fjármálaráðherrann þarf ekki að fjármagna með lánum eða kannski gerir hann það.
En af því að ég byrjaði þessa ræðu mína á þjóðarsáttinni þá er engin þjóðarsátt um þessa nálgun. Það er ekki þjóðarsátt hjá verkalýðshreyfingunni núna með kjarasamninga í uppnámi. Það er ekki þjóðarsátt hjá þeim sem þurfa að borga gjöld fyrir að leggjast inn á spítala. Það er ekki þjóðarsátt hjá þeim stúdentum sem eru nú skattlagðir því að peningarnir sem koma inn vegna hækkunar á skráningargjöldum fara ekki til háskólans nema að örlitlum hluta, þeir fara í ríkissjóð. Flokkarnir eða flokkurinn, aðallega Sjálfstæðisflokkurinn sem er nú upptekinn við að leggja til skattalækkanir af því að skattar eru svo mikill viðbjóður, þessi sami flokkur er búinn að finna andlag skattanna, það eru sjúklingar og stúdentar. Þetta er fólkið sem á að skattleggja núna, en þá heitir það ekki skattar, það heitir eitthvað annað, vænti ég.
Herra forseti. Þetta fjárlagafrumvarp endurspeglar sennilega hægri sinnuðustu ríkisstjórn frá upphafi sem markar líka þáttaskil í pólitískri sögu á Íslandi. Ég vona að hún eigi ekki langa lífdaga fram undan.