143. löggjafarþing — 39. fundur,  17. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[15:54]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir málefnalegt innlegg og það er alveg sjálfsagt að svara þessu. En það er samt svolítið dæmigert fyrir umræðuna að segja að við séum að þjarma að utanríkisþjónustunni. Við eigum ekki peningana. Það er ekki þannig að einhver stofnun, sama hvað hún er góð, eigi skattpeninga. Við verðum að hugsa um þetta þannig að við verðum að forgangsraða. Og af hverju er meiri niðurskurður á utanríkisþjónustuna? Krafan er 5% yfir línuna og öll ráðuneytin en er hærri á utanríkisþjónustuna, þar eru að vísu teknir út tveir liðir þar sem átti að vera aukning. Það er annars vegar fastanefndin í Strassborg og einnig aukning sem átti að vera í utanríkisþjónustunni. Það er það sem kemur til viðbótar. Og ég held að við séum sammála um að þetta eru ekki forgangsmál. Hér erum við að huga að forgangsmálum og forgangsmál er heilbrigðisþjónustan.