fjárlög 2014.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir ræðu hans hér áðan. Hann kom inn á ansi mörg mál en mig langar kannski helst í upphafi að koma inn á það sem hefur verið, eigum við ekki að segja sameiginlegt áhugamál mitt og þingmannsins, þ.e. velfarnaður heilbrigðiskerfisins í landinu.
Hv. þingmaður talaði um komugjöldin og það var komið aðeins inn á þau. Ég er einn þeirra sem hafa gagnrýnt þessi komugjöld, ég tel þau ekki vera skynsamlega leið til að afla fjár og ég tel að það séu margar miklu skynsamlegri leiðir til að ná í peninga fyrir heilbrigðiskerfið.
Mig langar hins vegar að fá að heyra hjá þingmanninum, óháð þeim ágreiningi sem kann að vera milli mín og hv. þingmanns um komugjöldin, hvað hann telji að sé hæfileg upphæð í komugjöldum, á hvaða bili sú upphæð eigi að liggja og hvort hann telji að einhverjir eigi að vera undanþegnir komugjöldum, til að mynda lífeyrisþegar, fatlað fólk, ungmenni o.s.frv. Það er afar mikilvægt að þetta komi fram í ræðum hv. stjórnarþingmanna hér á þingi vegna þess að þarna liggur dálítið mikill kjarni í því hvaða sýn menn hafa á hvernig eigi að afla fjár fyrir ríkið. Mér finnst persónulega að miklu farsælli leið sé sú sem hefur verið góð samstaða um hingað til í íslenska heilbrigðiskerfinu; að reyna eftir megni að afla fjár hjá einstaklingum meðan þeir eru enn þá heilbrigðir frekar en að grípa í gæsina, eins og mætti segja, þegar fólk er orðið lasið.