fjárlög 2014.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon þarf ekki að taka mig í kennslustund varðandi þau mál sem við fjöllum hér um, Farice-sæstrenginn. Líklega talaði enginn þingmaður jafnmikið í því máli og ég allt síðasta kjörtímabil og ég benti á hvílíkt rugl er þar í gangi. Ég hef þegar farið fram á sérstaka umræðu um þessi mál eftir að þing kom saman á ný í haust. Þannig er það. Ég veit ósköp vel að helmingurinn af málinu liggur í innanríkisráðuneytinu vegna þess að það fjallar um fjarskipti en fjármálahliðin liggur í fjármálaráðuneytinu.
Ég tala um málin eins og þau eru. Hér er ekki verið að setja af stað neinar blekkingar eins og keyrðar voru hér af síðustu ríkisstjórn þar sem ekki var viðurkennt hvílíkt vandamál Farice væri, það er einungis 5% nýting af strengnum á milli landa, allt of stórt umfang miðað við hve lítil umferð er hingað til lands og frá landinu. Þetta er því stórt vandamál sem við erum ekki búin að sjá almennilega fyrir endann á. Ég minni á að þetta er svipað vandamál og við stöndum frammi fyrir með Íbúðalánasjóð. (Forseti hringir.) Þess er krafist að ríkið leggi ómælt fé þarna inn, reksturinn er í molum, þannig að við skulum bara tala um þetta eins og þetta er.