fjárlög 2014.
Herra forseti. Ég sé í fjárlagafrumvarpinu sem hefur verið lagt fram að þar er af ýmsu að taka, en ég ætla að gera svipað og margir aðrir þingmenn hafa valið hér í ræðustól og fara yfir fáein atriði sem mér finnst skipta einna mestu máli. Ég mun því í ræðu minni í dag tala töluvert mikið um heilbrigðismál, ég ætla að koma aðeins inn á náttúruvernd og inn á þann ósóma að moldríkt samfélag skuli ekki tíma að standa í lappirnar í þróunaraðstoð og að við skulum ekki tíma að greiða atvinnuleitendum desemberuppbót.
Herra forseti. Við skulum byrja á heilbrigðismálunum. Það hefur legið fyrir núna í a.m.k. 15 ár, líklega töluvert lengur, að heilbrigðiskerfið hér þarf öfluga innspýtingu og að byggja þarf nýtt háskólasjúkrahús. Þetta hefur legið fyrir. Það getur varla heitið að einhver ágreiningur hafi verið um það. Eftir því sem umræðan hefur dregist meir á langinn hefur í rauninni bráðleiki vandans orðið meiri. Það liggur til að mynda núna miklu meira á því en fyrir tíu árum að byggja nýtt sjúkrahús. Þess vegna lít ég svo á að við sem þjóð séum að missa af býsna góðu tækifæri sem við höfum við gerð fjárlaga nú, að taka ákvörðun um það í eitt skipti fyrir öll að byrja að byggja nýjan Landspítala. Það má eiginlega segja að núverandi stjórnarmeirihluti hafi ákveðið að þjóðin skyldi missa af lestinni í heilbrigðismálum, málið er í rauninni ekkert flóknara en það.
Þeir íslensku heilbrigðisstarfsmenn sem nú eru við nám víða erlendis líta ekki til Landspítala – háskólasjúkrahúss í þeirri mynd sem sú stofnun er í dag sem draumavinnustaðar eða vinnustaðarins sem þá langar að koma til og hefja landvinninga og hjálpa fólki. Það er ekki þannig. Frá hruni hefur fækkað töluvert í hópi þeirra heilbrigðisstarfsmanna sem hafa skilað sér heim úr sérnámi erlendis. Þetta á ekki aðeins við um lækna, þetta á við um fleiri hópa heilbrigðisstarfsmanna. Ástæðan er ekki bara eins og sumir hafa viljað láta í veðri vaka að fólk geti fengið betri laun eða betri kjör í öðrum löndum. Mjög stór hluti ástæðunnar liggur í því að fólk vill ekki koma hingað frá því að vinna við góðar aðstæður þar sem það hefur möguleika á rannsóknarvinnu við frábærar aðstæður við góða stofnun. Fólk vill ekki koma hingað í saggann og fúkkann og hálfhrundar byggingar á köflum.
Herra forseti. Við höfðum tækifæri og ég hélt satt að segja að Alþingi Íslendinga hefði tekið um það ákvörðun sl. vor að við ætluðum að koma okkur af stað, en svo var ekki. Það voru reyndar nokkrir þingmenn á þeim tíma, meðal annarra hv. formaður fjárlaganefndar, sem gátu ekki tekið þátt í þeirri vegferð. En það vekur athygli mína að á þeim tíma greiddi hæstv. núverandi heilbrigðisráðherra atkvæði með því að við færum af stað með þetta verkefni. Þegar síðan kemur að fjárlögum standa menn ekki í lappirnar. Þá er mikilvægara að leggja á sjúklingaskatta, innritunargjöld. Þá er mikilvægara að gefa útgerðum landsins svolítinn pening af því að þær eiga svo voðalega bágt.
Þegar menn taka svona ákvarðanir veltir maður fyrir sér: Hvað eru þeir eiginlega að hugsa? Halda þeir virkilega að úr kerfi eins og heilbrigðiskerfinu, sem hefur verið vanfjármagnað sl. 10–15 ár, sé endalaust hægt að taka blóð án þess að það láti á sjá? Auðvitað er það ekki þannig.
Við verðum sem þjóð, ef við ætlum að vera hérna með alvöruheilbrigðiskerfi, nútímaheilbrigðiskerfi, að koma okkur úr sporunum. Þá duga því miður ekki plástrar eins og þeir sem er verið að koma með nú við 2. umr. frumvarpsins, að setja 3–4 milljarða í tækjakaup og rekstur Landspítalans umfram það sem áður var ætlað. Það dugar ekki til. Auðvitað hjálpar það og það getur vel verið að menn geti haldið því fram að spítalinn hangi til næstu tveggja ára, en það verður að taka ákvörðun. Við sem þjóð verðum að taka ákvörðun um það hvort við viljum vera með nútímaheilbrigðiskerfi eða hvort við viljum vera með heilbrigðiskerfi sem er 20–30 árum á eftir þróuninni í löndunum í kringum okkur.
Sumir þingmenn kunna að hugsa með sér: Ja, ég hafði það alveg ljómandi gott fyrir 20–30 árum og ég var í ágætis sambandi við lækninn minn þá og sjúkraþjálfarann minn og tannlækninn. Ég er alveg viss um að þessir sömu alþingismenn mundu ekki vilja vita, ef þeir þyrftu til að mynda að fara í aðgerð eða myndgreiningu, speglun eða þess háttar, að tækin sem er verið að nota eru á köflum 15–20 ára gömul, þau elstu, og bilanatíðni orðin há. Eins og þingmönnum er kunnugt um varð Landspítali – háskólasjúkrahús nú í vetur að kaupa sér þjónustu úti í bæ. Þá komum við kannski að kjarna málsins, herra forseti: Er það það sem menn vilja? Vilja menn sem sagt miklu frekar að það verði meira svigrúm fyrir einkaaðila úti í bæ til að hafa tekjur af heilbrigðisþjónustu?
Nú ætla ég ekki að halda því fram að það sé einhver nýlunda í íslenskri heilbrigðisþjónustu að hluti hennar sé einkarekinn, síður en svo. En það hefur fram til þessa verið ágætissamhljómur í íslensku samfélagi um það að dýrustu þættir íslenska heilbrigðiskerfisins eigi að vera á hendi hins opinbera og ríkið eigi að sjá sóma sinn í því að reka almennileg sjúkrahús á Íslandi. Við erum því miður, herra forseti, að hverfa af þeirri braut með þessu fjárlagafrumvarpi.
Það eru fleiri þættir í heilbrigðisþjónustu en sjúkrahúsin. Núna nýlega, bara í síðustu viku, bárust okkur fregnir af því að hjúkrunarheimili landsins berjast meira og minna í bökkum. Það þarf ekki að minna hv. þingmenn á alla umræðuna sem skapaðist í kringum rekstrarvanda Hjúkrunarheimilisins Eirar í fyrra og nú síðast rekstrarvanda elsta sérhæfða hjúkrunarheimilis landsins, Sunnuhlíðar í Kópavogi. Þar segir sjálfseignarstofnunin sem rekur heimilið sig hreinlega frá verkum vegna þess að við sem fjárveitingavald, þ.e. Alþingi, höfum ekki staðið í lappirnar og tryggt þessum stofnunum nægt rekstrarfjármagn. Það er ekki flóknara. Við erum því miður ekki bara með dæmi um Sunnuhlíð og Eir heldur líka önnur hjúkrunarheimili um allt land. Sem betur fer taka sveitarfélögin sums staðar myndarlega þátt í rekstri hjúkrunarheimila, þrátt fyrir að verkefnið sé í rauninni ríkisins. En hv. þingmenn vita það jafn vel og ég að rekstur hjúkrunarheimila og málaflokkurinn málefni aldraðra er á hendi ríkisins og grundvallarábyrgðin liggur hjá heilbrigðisráðuneytinu hvað þetta varðar.
Við þurfum sem þjóð að gera upp við okkur: Erum við sem nú erum á miðjum aldri tilbúin til að segja í dag að þegar við verðum komin á þann aldur að þurfa að fara á hjúkrunarheimili eða þegar við þurfum að nota þjónustu hjúkrunarheimila þá verði fjölbýli ríkjandi á hjúkrunarheimilum? Mundum við hv. þingmenn sætta okkur við að búa í 5,5 fermetra einkarými á hjúkrunarheimili með öðrum einstaklingi sem býr í hinum 5,5 fermetrunum? Ég held ekki. Ég er ansi hræddur um að við yrðum ekki alveg sátt við það. Værum við til í að vera í þríbýli með óskyldu fólki? Nei, hv. þingmenn, það værum við ekki. Ef við getum ekki með góðri samvisku sagt að minnka megi þessa þjónustu þá eigum við að standa í lappirnar og segja: Nei, við ætlum að gera betur. Við skulum ekki gleyma því, hv. þingmenn, að þeir sem nota þjónustu hjúkrunarheimila í stærstum mæli er fólkið sem byggði upp þetta samfélag, fólkið sem er búið að greiða til samfélagsins í umtalsverðum mæli.
Oft er sagt að það megi meta styrk samfélags af því hvernig það kemur fram við sína smæstu borgara. Ég verð að segja, herra forseti, að ég er ekki alltaf stoltur þegar ég geng út af hjúkrunarheimilum höfuðborgarsvæðisins. Maður er ekki alltaf stoltur af því að sjá hvernig er búið að gömlu fólki, síður en svo. Þess vegna, herra forseti, nota ég hluta af ræðu minni í dag til þess að brýna þingmenn til að sjá ljósið í þessu efni og bæta þarna í, á því er virkilega þörf.
Nú talar hæstv. heilbrigðisráðherra — ég sá það á einhverjum vefmiðlinum — um að það eigi kannski að setja 200–300 milljónir aukalega í þennan málaflokk. Hv. þingmenn, það er um það bil sama upphæð og er að setja eitt hjúkrunarheimili á hausinn — eitt. Á höfuðborgarsvæðinu eru, ef ég man rétt, á milli 10 og 12 slík. Það er því hálfaumur plástur sem felst í þessu.
Í allri umræðunni sem hefur verið um fjárlögin hefur mikið verið rætt um með hvaða hætti heilbrigðiskerfið geti aflað sér tekna. Ég er einn af þeim, herra forseti, sem hafa talið að við höfum gengið of langt á síðustu missirum í því að auka hlut sjúklinga í greiðslu heilbrigðiskostnaðar. Ef mig rekur rétt minni til var hlutfallið á árunum 2008 og 2009 í kringum 18%, sem sjúklingar þurftu að greiða af heildarkostnaði við heilbrigðiskerfið. Mér fannst það vera of mikið. Núna erum við komin upp undir 20% og þá ætlar núverandi ríkisstjórn að höggva í sama knérunn og setja á sjúklingaskatta. Það á að leggja gjöld á fólk þegar það er orðið virkilega veikt, svo veikt að það þarf að leggjast inn á sjúkrahús. Þá ætlum við að klípa aðeins meira af því, ná í aðeins meiri pening. Maður freistast til að hugsa sem svo, herra forseti, að menn segi með sér: Já, menn hætta náttúrlega ekkert við að fara á spítala, ha, er það nokkuð? Við hljótum að geta náð í þennan pening þannig. Ég vona bara að menn séu ekki að hugsa þetta svona. Það er hreint út sagt skelfilegt ef við sem stöndugt samfélag, sem er eftir því sem hv. stjórnarþingmenn segja á uppleið og ég held að það sé að mörgu leyti rétt hjá þeim, ætlum að loka þessum fjárlögum með því að kroppa nokkra tugi milljóna af veikasta fólkinu í samfélaginu. Það sýndi alveg ótrúlega lítinn manndóm að gera það. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á að hv. þingmenn muni feta þann slóða, ég trúi því bara ekki.
Í nútímaheilbrigðiskerfi eru þeir sem leggjast inn á sjúkrahús langveikustu einstaklingarnir. Þar eru þeir sem svo er komið fyrir að ekki er hreinlega hægt að nota önnur úrræði til þess að hjálpa þeim en leggja þá inn. Göngudeildarþjónustan sinnir sífellt stærri hluta. Látum liggja á milli hluta að menn borgi lág komugjöld á göngudeildum, en að ætla sér að ná í aura í vasa fólks sem neyðar sinnar vegna þarf að leggjast inn á sjúkrahús þykir mér ekki stórmannlegt, herra forseti. Við sem þingmenn, sama hvar í flokki við stöndum, eigum að sameinast um að losa okkur við slíkan ósóma.
Ég talaði aðeins um framtíð og framtíðarsýn heilbrigðiskerfisins áðan og af hverju þetta skiptir allt svona miklu máli. Af hverju skiptir Landspítalinn svona miklu máli? Það er vegna þess að Landspítalinn hefur verið móðurskip íslenska heilbrigðiskerfisins. Þangað hafa komið til starfa færustu sérfræðingar íslenska heilbrigðiskerfisins og þar hefur verið unnið gríðarlega mikið vísindastarf og rannsóknarstarf í gegnum tíðina. Spítalinn er öflug háskólastofnun. Þannig viljum við væntanlega hafa hann vegna þess að við vitum að ef við gerum það ekki þá getum við ekki laðað þangað starfsfólk. Við getum ekki fengið hámenntað starfsfólk til þess að vinna á sjúkrahúsi sem er B mínus. Best menntaða starfsfólkið getur fengið vinnu hvar sem er. Það á ekki bara við um lækna, herra forseti, síður en svo. Við sjáum það til að mynda í umtalsverðum mæli að heilbrigðisstarfsfólk í öllum greinum sækir til útlanda, fer í vinnu þangað. Ef við gerum ekkert til þess að bregðast við því mun áfram að blæða úr heilbrigðiskerfinu og framtíðarsýnin verður eitthvert 19. aldar fyrirbæri sem getur í rauninni ekki gert annað en það sem var gert þegar heilbrigðisþjónustan var í árdaga hér á landi, tekið mönnum blóð. Það verður ekkert annað eftir. Við verðum að koma í veg fyrir þetta.
Fyrst við erum að tala um eymd náungans get ég ekki látið hjá líða, herra forseti, að ræða um þann ósóma sem birtist í tillögu meiri hluta fjárlaganefndar að skera niður þróunaraðstoð. Ég fatta hreinlega ekki þann hugsunarhátt sem býr þar að baki, svo að maður noti bara venjulegt mál, ég fatta það ekki. Þó skil ég býsna vel að við þurfum að tryggja það að fjárlögunum sé lokað því sem næst á núlli, en að sætta sig við það sem þjóð að vera eftirbátur allra landanna í kringum okkur hvað varðar stuðning við þá sem minnst mega sín í heiminum er alveg ótrúlega smátt. Maður fyrirverður sig fyrir að hér skuli hafa verið lagðar fram tillögur sem þessar. Það er svo auðvelt að loka augunum, það er svo auðvelt að líta í aðra átt þegar maður sér eymdina blasa við um allan heim, en það er ekki stórmannlegt. Fyrir utan það hafa Íslendingar í gegnum tíðina rekið mjög stóran hluta af þróunaraðstoð sinni með íslensku starfsfólki. Nú mun væntanlega eitthvað af því fólki missa vinnuna. Finnst hv. þingmönnum stjórnarmeirihlutans á það bætandi? Við skulum gróft séð segja að 500 millj. kr. framlag sem minnkar gæti verið einhvers staðar á bilinu 20–30 störf Íslendinga og sjálfsagt einhverjir tugir annars staðar í heiminum. Ég sé ekki af hverju við eigum að fara þessa leið.
Við Íslendingar höfum til að mynda rekið skóla eins og Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna sem er í rauninni undir þessum hatti og hefur hlotið einróma lof forstöðumanna Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Við veljum að skera niður peninga til þessa. Við erum meðvitað að tína af okkur skrautfjaðrir svo að sjái í bert. Ég verð að segja það, herra forseti, að ég skil ekki slík vinnubrögð.
Hv. þingmönnum bæði í stjórnarmeirihlutanum og minni hlutanum á Alþingi hefur við þessa umræðu orðið tíðrætt um mikilvægi þess að farið sé vel með opinbert fé. Ég er sammála því, það er býsna mikilvægt. Þess vegna á ég erfitt með að skilja hvernig menn geta látið það flútta við góða meðferð á opinberu fé að kalla til baka heilu lagabálkana bara vegna þess að síðasti þingmeirihluti hafði forgöngu um samningu þeirra.
Tökum náttúruverndarlögin sem dæmi. Það er alveg ótrúlegt að menn séu til í að henda um þúsund ársstörfum út um gluggann. Ef við leyfum okkur að reikna lauslega hvað þúsund ársstörf eru í peningum, eigum við að segja að það séu svona 5, 6 milljarðar þegar allt er talið? Að minnsta kosti ef við gefum okkur það að hluti þess hóps sem lagði til vinnu á sínum tíma hafi verið sérfræðingar. Þetta finnst mönnum allt í lagi. Já, já, hendum bara þessum þúsund ársverkum. Það er hvort sem er svo rólegt hjá okkur, við eigum hvort sem er svo mikinn pening. — Nei, það er ekki þannig. Hafi mönnum fundist í gegnum tíðina eitthvað athugavert við lagasetningu fyrri ríkisstjórna hafa menn einfaldlega komið fram með frumvörp og breytt lögum en ekki kastað út margra ára vinnu hundraða einstaklinga. Á sömu forsendum hefði væntanlega þessum sömu einstaklingum þótt alveg sjálfsagt að eftir að búið var að ganga frá samþykkt á byggingu Kárahnjúkavirkjunar að þeir sem tóku næst við hefðu hreinlega stoppað framkvæmdina. Já, við skulum bara hætta þessu. Er það ekki? Þetta voru ekki neinir náttúruverndarsinnar sem ákváðu þetta og þeim var alveg sama um náttúruna, eigum við ekki bara að stoppa þessa framkvæmd? — Nei, svoleiðis gera menn ekki í almennilegri stjórnsýslu. Menn sætta sig við að teknar eru ákvarðanir af til þess bærum lögmætum stofnunum eins og Alþingi og hafi menn eitthvað við lagasetningu að athuga leggja þeir til breytingar á lögum. Það er ótrúlega mikil meinbægni falin í því að fara þessa leið.
Ef menn telja sig vera aflögufæra um 5, 6 milljarða til að semja náttúruverndarlög upp á nýtt, fara í gegnum allt vinnuferlið upp á nýtt, þá hljóta þeir að eiga peninga til að setja í heilbrigðiskerfið. Þá hljóta menn alveg eins að eiga peninga í öll hin verkefnin sem ég er búinn að nefna hér fyrr í dag. Getum við þá ekki frekar sett nokkra milljarða í viðbót í hjúkrunarheimilin, til dæmis?
Nú geri ég mér, herra forseti, fulla grein fyrir því að það er ekki beint sanngjarnt að stilla málum þannig upp að maður taki peninga beint frá einum stað og geti svo bara notað þá einhvers staðar annars staðar, auðvitað er það ekki þannig. Engu að síður verður maður í samhengi hlutanna að gera ráð fyrir að kasti menn frá sér tekjumöguleikum hljóti þeir að gera það vegna þess að þeir hafi nóg. Það hlýtur að vera þess vegna. Það er alla vega þannig í venjulegu heimilishaldi og í venjulegum rekstri, sem ég veit að mörgum þingmönnum stjórnarmeirihlutans er mjög umhugað um að gangi. Þá henda menn ekki frá sér stórum fjárhæðum eða stórum hluta rekstrarins án þess að hafa efni á því. Það er bara ekki þannig.
Herra forseti. Það hefur einnig farið töluverður tími í þessari umræðu í að ræða um kjör atvinnuleitenda á Íslandi. Ég held að við þingmenn getum öll verið sammála um að kjör atvinnuleitenda eru, ja, við skulum segja ekki neinn lúxus. Fyrst við gátum fundið peninga á árunum 2009, 2010, 2011 og 2012 til að greiða desemberuppbót til atvinnuleitenda neita ég að trúa því að við getum ekki fundið peninga til þess arna árið 2013. Það er ótrúlegt að menn leyfi sér að halda því fram að ekki sé hægt að forgangsraða með þeim hætti, alveg ótrúlegt. Menn voru til í að láta frá sér hækkunina á gistináttaskattinum, létu þar frá sér umtalsverða fjármuni, en menn eru ekki til í að ráðstafa peningum til að atvinnuleitendur fái desemberuppbót eins og þeir hafa gert undanfarin ár. Auðvitað kostar þetta peninga, það er enginn að segja að það kosti ekki eitthvað. 240 milljónir eru í stóra samhenginu umtalsvert fé, en ef við umreiknum það t.d. yfir í kvóta, segjum þorskígildistonn, þá eru þetta smáaurar. Ríkisstjórn sem er nýbúin að afsala sér margra milljarða tekna frá útgerðinni í landinu hlýtur að geta séð af 240 milljónum til atvinnuleitenda fyrir jólin, ég trúi ekki öðru. Það hefur einhverju slegið saman hjá fólki, það hlýtur að vera.
Sem betur fer hefur atvinnuleysi farið minnkandi. Þó að árstíðarsveiflan sé eilítið upp á við núna hefur atvinnuleysi farið minnkandi. Atvinnuleysi í nóvember á þessu ári var rúmu prósenti lægra en atvinnuleysi í nóvember í fyrra. Það er fínt, það er mjög gott. Á þeim tíma sem stjórnarmeirihlutinn heldur því fram að hann sé loksins að ná að rífa þetta þjóðfélag upp úr hörmungum vinstri stjórnarinnar eins og ég heyrði einhvers staðar sagt — sem er náttúrlega eitthvert mesta öfugmæli sem hugsast getur — þá höfum við ekki efni á að borga desemberuppbótina. Það er alveg makalaust. (LRM: Forgangsröðun.) Það er nefnilega eins og hv. þingmaður grípur hér fram í með, þetta snýst allt um forgangsröðun. Hvar vill maður að sporin marki? Vill maður að þeir sem hafa það virkilega skítt í samfélaginu fái að njóta þess í einhverju að það er að koma hátíð eða vill maður sleppa því að rukka ferðamann um nokkra hundraðkalla eða kannski bara gefa útgerðarmönnum makrílkvótann? Er það ekki voða fínt?
Það er svolítið ankannalegt, herra forseti, í því sem ég vil kalla andrúmsloft gjafagjörninga, sem núverandi ríkisstjórn og ríkisstjórnarflokkar standa svolítið fyrir, að þeir skuli ekki vilja gefa peninga til atvinnuleitenda. Það er dálítið spes. Hv. þm. Pétur Blöndal, sem er hér í salnum, hefur stundum talað um að sennilega væri langréttlátasta útdeilingin á kvótanum sú að allir landsmenn fengju nokkur tonn af kvóta (PHB: Kíló.) — kíló. Hv. þingmaður leiðréttir mig ef þetta er misminni hjá mér. Það eru ekki mörg kíló af þorskkvóta í 240 milljónum, ekkert rosalega mörg, og við sem samfélag hljótum að ráða við það.
Herra forseti. Í fjárlögum hvers árs birtist ákveðin sýn eða við ætlumst a.m.k. til þess að í þeim birtist ákveðin sýn. Við ætlumst til þess að í þeim felist bjartsýni þeirra sem setja fjárlögin fram, en það er hálfsorglegt til þess að hugsa að sú bjartsýni sem núverandi stjórnarmeirihluti hefur fram að færa á aðventunni skuli liggja í því að borga ekki desemberuppbót til atvinnuleitenda og skera niður framlög til þróunaraðstoðar. Það er mjög sérstakt.
Herra forseti. Ef þingheimur sammælist ekki um það núna að taka myndarlega á fyrir íslenska heilbrigðiskerfið munu eldar þar ekkert slokkna á næstunni. Í því sambandi get ég nefnt að á þessu ári hafa verið settar nokkrar krónur í endurbætur á Landspítala – háskólasjúkrahús við Túngötu, oftast kallað Landakotsspítali. Því miður gera menn það af slíkum vanefnum að nokkrum vikum eftir að endurbætur eru farnar af stað er allt komið aftur í sama farið. Við getum ekki verið stolt af því að fara svona með heilbrigðiskerfið okkar. Við eigum að hafa miklu meiri metnað fyrir hönd heilbrigðiskerfisins.
Ég man þá tíma þegar þingmenn úr öllum flokkum sögðu það fullum fetum að samstaða ætti að vera um heilbrigðiskerfið sem almannaheilbrigðiskerfi, það ætti að vera samstaða um að hafa öflugt heilbrigðiskerfi. Það getum við ekki nema við séum með sterkt móðurskip þar sem Landspítalinn er. Við eigum að sammælast um það nú á aðventunni að hverfa ekki frá þessari fjárlagaumræðu án þess að taka ákvörðun um það — þó að við ákveðum ekki að breyta núna öllu því sem ég hef rætt um hér — að Landspítalanum megi ekki blæða meira og að við ætlum að taka upp varnir fyrir þetta stærsta og mikilvægasta sjúkrahús landsins.