143. löggjafarþing — 39. fundur,  17. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[19:09]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Því miður komst ég í ræðu minni ekki yfir alla þá málaflokka sem ég hefði helst viljað ræða um. Ég gæti til dæmis haldið aðra 40 mínútna ræðu, ef ég mætti, um samgöngumálakafla fjárlagafrumvarpsins svo ég taki það sem dæmi. Ef til vill kemst ég í það síðar.

Hvað varðar menntamálakaflann, eins og hv. þingmaður spyr um, vísa ég bara til þeirra áherslna sem koma fram í breytingartillögu 1. minni hluta Samfylkingarinnar við fjárlög þar sem áhersla er lögð á menntamál og settar inn töluverðar upphæðir til innspýtingar í menntamál. Í nefndaráliti 1. minni hluta fjárlaganefndar er talað um þær miklu skipulagsbreytingar á námi í framhaldsskólum og háskólum sem hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra hefur boðað. Hann ræðir um styttingu námstíma til stúdentsprófs og til prófa í starfsnámi. Öll þessi atriði eru vel rakin í nefndaráliti okkar, eins og ég segi með breytingartillögum okkar, en ég vil segja af því að hér er getið um styttingu námstíma til stúdentsprófa að ég hef átt fundi austur í Neskaupstað þar sem nýr skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands hefur farið yfir þessi mál og mér þótti mjög merkilegt hvernig hann setti það fram með tilliti til íbúa á landsbyggðinni og svo aftur á höfuðborgarsvæðinu með tilliti til styttingar náms, þ.e. hvar styttingin eigi að koma. Á að stytta grunnskólann eða eiga nemendur í framhaldsskóla að ljúka fyrr varðandi aldur (Forseti hringir.) o.s.frv.?