143. löggjafarþing — 40. fundur,  18. des. 2013.

störf þingsins.

[11:00]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Á undanförnum mánuðum hefur verið unnið að sameiningu og samþættingu heilbrigðisstofnana á Vestfjörðum, Norðurlandi og Suðurlandi. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að íbúar, sveitarstjórnarmenn og heilbrigðisstarfsfólk hafa haft verulegar áhyggjur af þessum áformum. Þær áhyggjur eru eðlilegar og skiljanlegar. Öflug heilbrigðisþjónusta er ein forsenda lífvænlegra byggða um land allt.

Það hefur legið fyrir í nokkurn tíma að gefin er út reglugerð um sameiningu stofnana í umdæmum Vestfjarða, Norðurlands og Suðurlands. Miðað var við að reglugerðin tæki gildi 1. janúar næstkomandi. Sameining heilbrigðisstofnana og samþætting yfirstjórnar er vandasamt verkefni. Góð samvinna velferðarráðuneytis við sveitarstjórnir og starfsfólk viðkomandi stofnana er forsenda þess að vel takist til. Þess vegna hef ég ákveðið að fresta setningu áðurnefndrar reglugerðar og geri ráð fyrir að sameining heilbrigðisstofnana verði á komandi hausti. Með því skapast aukið svigrúm fyrir meira samráð milli ráðuneytis annars vegar og sveitarstjórnar og heilbrigðisstarfsfólks hins vegar um stefnuna í samþættingu heilbrigðisstofnana. Markmiðið með samþættingu heilbrigðisstofnana er að nýta fjármuni betur en gert er og styrkja rekstrar- og stjórnunareiningar. Þannig verður þjónustan við íbúana traustari og meiri, sérfræðiþjónusta betri og stöðugri. Þá skiptir ekki minnstu að með sameiningu mun ákvarðanataka færast í auknum mæli til heimamanna.

Verkefnið er skýrt, að tryggja hagsmuni einstakra byggðarlaga, auka öryggi íbúa með góðri heilbrigðisþjónustu og nýta fjármuni betur. Ekkert annað býr að baki þessum áformum en einbeittur vilji til að styrkja heilbrigðisþjónustuna á landsbyggðinni.