143. löggjafarþing — 40. fundur,  18. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[15:36]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf):

Forseti. Ég greiði atkvæði með þessari tillögu og vil sérstaklega vekja athygli á tillögum sem leggja til 307 millj. kr. hækkun til skapandi greina og lista ýmiss konar, sem er í samræmi við þær áætlanir sem voru uppi um að byggja hér upp nýtt og skapandi atvinnulíf. Einnig vil ég benda á að við leggjum til 500 millj. kr. hækkun til þróunarsamvinnu sem er í samræmi við þingsályktunartillögu sem var samþykkt í vor með öllum greiddum atkvæðum og aðeins einu mótatkvæði frá formanni fjárlaganefndar.