143. löggjafarþing — 40. fundur,  18. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[15:50]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég greiði atkvæði með þessari tillögu. Þetta snýst um að Ríkisútvarpið fái þær tekjur sem því eru ætlaðar út frá því útvarpsgjaldi sem við greiðum. Það er í anda þeirrar hugmyndafræði sem var við lýði árið 2007 þegar Ríkisútvarpinu var breytt í ohf. og útvarpsgjald tekið upp. Sú mörkun var svo tekin úr sambandi, henni var komið aftur á með lögum sem voru samþykkt hér síðasta vor og nú hefur því miður aftur verið ákveðið að kippa þeirri mörkun úr sambandi, sem er stórt grundvallarmál um það hvernig við lítum á almannaútvarp og hvort við teljum ekki eðlilegt að fjárframlög til þess séu fyrirsjáanleg og sjálfstæður tekjustofn. Þarna hafa þingmenn tækifæri til að greiða atkvæði með því að öll þessi fjárhæð renni til Ríkisútvarpsins.