fjárlög 2014.
Herra forseti. Hér leggjum við til að niðurgreiðsla á húshitun verði hækkuð um 225 millj. kr., en í fjárlögum sem hér liggja fyrir er talað um að lækka þennan lið um 75 millj. kr. Á yfirstandandi ári var hækkun upp á 175 millj. kr. og var hann hugsaður sem fyrsti áfangi af þremur til að koma þessum málum í viðunandi horf.
Við leggjum mikla áherslu á að haldið verði áfram á sömu braut og leggjum þess vegna til að hækka þennan lið um 225 millj. kr., sem er að sjálfsögðu mjög mikilvægt fyrir þá íbúa sem búa á köldum svæðum og njóta ekki ódýrrar hitaveitu.