143. löggjafarþing — 40. fundur,  18. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[16:01]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Virðulegi forseti. Vinstri græn leggja til að ríflega 5 milljörðum kr. sé bætt í fyrir heilbrigðisstofnanir almennt, fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri, Landspítala – háskólasjúkrahús og heilsugæslu. Þessi hækkun eru skýr skilaboð til þeirra stofnana sem hér eru undir um að fram undan séu bjartari tímar og að niðurskurði sé snúið við í uppbyggingu.