fjárlög 2014.
Herra forseti. Hér koma til atkvæða breytingartillögur við fjárlagafrumvarpið frá þingmönnum Bjartrar framtíðar. Hér kennir svipaðra grasa og í tillögum bæði frá Vinstri hreyfingunni – grænu framboði og Samfylkingunni. Það er verið að leggja til viðbætur í málaflokka sem tengjast fjárfestingaráætlun fyrrverandi ríkisstjórnar sem var unnin m.a. í ágætu samstarfi við Bjarta framtíð. Við erum að sjálfsögðu sammála þessum tillögum. Við látum það einu gilda hvaðan gott kemur og greiðum atkvæði með tillögunum.