143. löggjafarþing — 40. fundur, 18. des. 2013.
fjárlög 2014.
1. mál
Virðulegi forseti. Mig langar aðeins til að vekja athygli á því að hér er verið að leggja til að Menntaskólinn í Reykjavík fái framkvæmdafé. Því ber að fagna vegna þess að sá skóli hefur liðið fyrir nokkurn fjárskort. Ég vil taka fram að ekki er verið að fara inn í módelið sem framhaldsskólarnir fá til að reka sig heldur einungis verið að gefa vísbendingu um að Menntaskólinn geti farið í framkvæmdir til stækkunar.