143. löggjafarþing — 40. fundur, 18. des. 2013.
fjárlög 2014.
1. mál
Virðulegi forseti. Við eigum frábæra tónlistarmenn á heimsvísu. Þarna er verið að setja 20 millj. kr. sem áður höfðu fallið út úr frumvarpinu til Útflutningssjóðs íslenskrar tónlistar. Það er einkar ánægjulegt að hægt sé að koma til móts við tónlistarmenn sem sækja í útrás og það er vel og fagna ég því.