fjárlög 2014.
Virðulegur forseti. Hér er verið að lauma inn nýjum skatti og flækja skattkerfið enn frekar þvert á það sem þessir stjórnarflokkar lofuðu síðast í vor. Í stað þess að stóriðjan greiði kostnaðinn við jöfnunaraðgerðir, eins og við hefðum stutt, er verið að leggja hann sérstaklega á þéttbýlið og fólk og fyrirtæki í landinu.
Það er þvert gegn því sem þessir stjórnarflokkar lofuðu. Það er orðið býsna sérstakt að fylgjast með ferlinum í iðnaðarráðuneytinu á aðeins sex mánuðum þar sem búið er að ýta Helguvík út af borðinu, koma Bakka í uppnám hjá ESA, búið að innleiða nýja skatta og flækja skattkerfið — allt þvert á það sem ráðherrann sagði bara síðast í vor. (Gripið fram í.)