143. löggjafarþing — 40. fundur,  18. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[17:02]
Horfa

Þórunn Egilsdóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Fyrir hönd þingflokks framsóknarmanna fagna ég því að forgangsraðað hefur verið í þágu heilbrigðismála og að framlag til Sjúkrahússins á Akureyri hefur verið aukið. Það eykur öryggi íbúa landsbyggðarinnar og styrkir heilbrigðiskerfið í heild. Sjúkrahúsið á Akureyri er mikilvægur hlekkur í heilbrigðisþjónustunni og sinnir stóru svæði. Með þessu er lagður grunnur að sterkari byggð.