fjárlög 2014.
Virðulegi forseti. Það er ástæða til að fagna þessum auknu fjárveitingum til Landspítalans þótt í litlu sé. Það er rétt að það komi líka fram að þær rangfærslur sem sumir hafa farið hér með, að það hafi verið gengið sérstaklega hart fram gagnvart heilbrigðiskerfinu á síðasta kjörtímabili, eru rangar. Á síðasta kjörtímabili var einmitt reynt í öllum niðurskurði að halda í við sig í niðurskurði á heilbrigðiskerfið og menntakerfið og fleiri þætti velferðarkerfisins. Það er núverandi stjórnarþingmönnum til skammar að halda öðru fram. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)