143. löggjafarþing — 40. fundur,  18. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[17:15]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Það má einu gilda hvort ég er að tala um atkvæðagreiðsluna eða gera grein fyrir atkvæði mínu. Ég vil undirstrika það sem hér hefur komið fram, vegna þeirra orða sem féllu hjá ýmsum stjórnarþingmönnum áðan, að í tíð fyrri ríkisstjórnar var hætt við frekari niðurskurð í heilbrigðiskerfinu á síðasta ári kjörtímabilsins. (Gripið fram í.) Það er þessi ríkisstjórn sem ákveður að byrja að hefja þá vegferð aftur og það er hún sem kemst í öngstræti með frumvarp sitt til fjárlaga í haust þar sem gert var ráð fyrir niðurskurði í heilbrigðisþjónustu.

Það er mjög mikilvægt að algerlega sé hafið yfir vafa og enginn vafi í hugum manna um það að sú niðurstaða sem náðist í gær á fundi formanna flokkanna um að fallið yrði frá sjúklingasköttum muni ekki leiða til viðbótarniðurskurðarkröfu á Landspítalann. Ég vil þess vegna taka það skýrt fram núna í atkvæðaskýringu um fjárveitingarnar til Landspítalans. (Forseti hringir.) Ég hvet hv. fjárlaganefnd til að fara sérstaklega yfir það mál milli umræðna og tryggja að samkomulag formanna flokkanna (Forseti hringir.) virki sem felst í því að viðbótarframlag komi til Landspítalans.