143. löggjafarþing — 40. fundur,  18. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[17:29]
Horfa

Björt Ólafsdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Eins og ég skil þetta er ríkið einhliða að draga sig út úr starfsendurhæfingarsjóðunum. Það var samstarf á milli ríkisins, lífeyrissjóðanna og atvinnurekenda þannig að þetta eru auðvitað skýr skilaboð. Það getur ekki verið að ríkið ætlist til þess að atvinnurekendur og lífeyrissjóðir reki þessa sjóði einir. Við hljótum að sjá fram á að þeir leggist af. Það er skringilegt og vont að þetta gerist einhliða og án þess að nokkurt samráð sé haft við hina aðilana.