143. löggjafarþing — 40. fundur,  18. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[17:37]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf):

Hæstv. forseti. Hér birtist í breytingartillögum dæmi um flaustursleg vinnubrögð ríkisstjórnarinnar varðandi samskipti við Evrópusambandið, einn af IPA-styrkjunum sem þar er verið að fella út. Hv. allsherjar- og menntamálanefnd átti kost á því að heimsækja Náttúrufræðistofnun fyrir nokkru og eitt af þeim stóru verkefnum sem hafa haldið þeirri stofnun þannig að menn hafa ekki þurft að skera gríðarlega mikið niður þar er þetta verkefni. Þarna er ekkert verið að aðlaga landið að ESB með öðrum hætti en þeim að verið er að skoða íslenska náttúru og gera hluti sem við höfum annars ekki efni á að gera.

Hér er verið að kasta því út og meira og minna, að því er virðist, fyrir klaufaskap og þetta er ekki eini liðurinn. Það eru margir liðir úti á landi og þegar menn voru að tala um hvað sveitarstjórnarmenn segðu um allt land kvörtuðu nánast allir undan því að verið væri að fella niður IPA-verkefni sem skipti mjög miklu máli fyrir atvinnu á landsbyggðinni.

Ég harma að þetta skuli hafa gerst svona og vildi vekja athygli á því í atkvæðagreiðslunni.