fjárlög 2014.
Herra forseti. Við erum hér komin að lokum atkvæðagreiðslunnar og ég vil almennt segja þetta um stöðu málsins nú. Í þessu fjárlagafrumvarpi er sköttum létt af útgerðarmönnum og hátekjufólki en skorið niður í ýmislegri velferðarþjónustu. Það er líka horfið frá fjárfestingu í nýjum atvinnugreinum einmitt þegar við þurfum atvinnusköpun og efnahagsuppbyggingu. (Gripið fram í.) Slíkt frumvarp er ekki hægt að styðja.
Ég vil nota tækifærið og taka undir hvatningu hv. þm. Árna Páls Árnasonar til hinna atkvæðamiklu forustumanna stjórnarflokkanna í fjárlaganefnd, hv. þingmanna Guðlaugs Þórs Þórðarsonar og Vigdísar Hauksdóttur, að tryggja það milli umræðna að ákvörðun formanna stjórnarflokkanna hér í gærkvöldi um að falla frá sjúklingagjöldum verði ekki gerð á kostnað Landspítalans. Slík breyting væri í anda þess góða samkomulags sem tókst í gærkvöldi og yrði mjög til þess að greiða fyrir þingstörfum næstu daga.