143. löggjafarþing — 40. fundur,  18. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[17:54]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér erum við að samþykkja hallalaus fjárlög og það gerist ekki af sjálfu sér. Við erum að samþykkja fjárlög þar sem við forgangsröðum fyrir þá sem minnst mega sín, þ.e. veikt fólk. Einnig erum við að gefa í þegar kemur að hlutum eins og bótum fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja. Þetta eru staðreyndir sem liggja fyrir. Mér finnst það dapurlegt þegar hv. stjórnarandstaða talar um hlutina með öðrum hætti.

En það sem stendur uppi eftir þessa atkvæðagreiðslu er að hér var hluti stjórnarandstöðunnar, bara hluti að vísu, sem greiddi ekki atkvæði með aukningu til heilbrigðisþjónustunnar. (Gripið fram í: Jú.) Það voru hv. þingmenn Samfylkingarinnar. [Frammíköll í þingsal.] Ef allir hefðu greitt atkvæði … [Frammíköll í þingsal. (Forseti hringir.) — Er ekki hægt að fá þögn í salinn? Kom ég við viðkvæma taug?(Forseti hringir.) Ef allir hefðu greitt atkvæði eins og hv. þingmenn Samfylkingarinnar (Gripið fram í: Þú segir ósatt.) hefði aukningin til heilbrigðisþjónustu ekki verið samþykkt. Þetta liggur alveg fyrir (Forseti hringir.) og hver sá sem kann að lesa atkvæðaskjalið getur séð það. [Frammíköll í þingsal.] Allt komið í þingskjöl.