tekjuaðgerðir fjárlagafrumvarps 2014.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar þar sem er að finna tillögur til breytinga á frumvarpinu um tekjuaðgerðir að því er varðar tekjuskatta einstaklinga, virðisaukaskatt og skatt á fjármálafyrirtæki ásamt viðbótartillögum um breytingu á veiðigjöldum og gjöld sem lagt er til að verði sett á úthlutun nýrra tegunda í íslenskri lögsögu.
Í tillögum sem Samfylkingin kynnti um síðustu helgi kom fram helsta forgangsröðun okkar í ríkisfjármálum, breytingartillögur sem við höfum kynnt við 2. umr. fjárlaga í dag á útgjaldahlið og jafnframt ýmsar ráðstafanir á tekjuhlið fjárlaganna sem ég mun gera grein fyrir.
Við leggjum í tillögum okkar höfuðáherslu á að nýta tekjuskattskerfið betur til kjarajöfnunar. Við teljum að sú tillaga sem ríkisstjórnin hefur sett fram um breytingar á skattprósentu í miðtekjuþrepi sé ekki sérlega skilvirk aðgerð til að ná því æskilega markmiði sem við erum sammála ríkisstjórninni um, að létta álögum af fólki á meðaltekjum. Ástæðan er sú að fyrirhuguð 0,8% lækkun á tekjuskatti í milliþrepi mun skila fólki með um 300 þús. kr. 500 kr. á mánuði en einstaklingi með 750 þús. kr. um 4.500 kr. Tillaga okkar er sú að verja sömu fjármunum, 5 milljörðum, til breytinga á meðaltekjuþrepinu með hækkun á neðri mörkum þess þannig að meðaltekjuþrepið hefjist ekki við 250 þús. kr. eins og nú heldur við 350 þús. kr. mánaðarlaun. Það er auðvitað mjög sérstök staða að vera með fjölþrepaskattkerfi en hafa neðsta þrepið svona naumt og stutt, á eins stuttu bili og við erum með þar sem lægstu umsamin laun eru rétt rúmar 200 þúsund og meðaltekjuþrepið hefst strax við 250 þúsund. Í nágrannalöndunum eru fleiri launþegar í fyrsta þrepi en hér og miðtekjuþrepið verður ekki að veruleika fyrr en nær meðaltekjum en raunin er á hér á landi.
Tillaga okkar er líka hugsuð til að verja hugmyndina um fjölþrepaskattkerfið. Við teljum afar mikilvægt að hækka þessi mörk núna því ella værum við í sjálfu sér að bjóða þeirri hættu heim að hækkun lágmarkslauna á næstu árum, hækkun verðtryggðs persónufrádráttar leiði til þess að svo að segja enginn verði eftir í lægsta tekjuþrepinu. Sú aðgerð að breyta neðra þrepi meðaltekjuþrepsins með þeim hætti sem við leggjum til mun skila öllum á launabilinu 250–600 þús. kr. betri niðurstöðu en aðgerð ríkisstjórnarinnar. Skurðpunkturinn er nokkurn veginn við 600 þús. kr. og þeir sem eru með yfir 600 þús. kr. í mánaðarlaun munu fara verr út úr tillögu okkar en tillögu ríkisstjórnarinnar.
Það eru mörg efnisleg rök fyrir því að láta þunga ívilnandi aðgerða af þessum toga lenda á neðri hluta tekjuskalans með þeim hætti sem við leggjum til. Fólk á tekjubilinu 250–400 þús. lendir harkalega í ýmiss konar skerðingum þar sem tekjutillit í bótakerfum veldur frekar háum jaðarsköttum hjá fólki í þeim tekjuhópi og því eru sterk efnisrök fyrir því að breyta eins og við leggjum til.
Í annan stað legg ég fram breytingartillögur sem lúta að breytingum á sérstökum skatti á fjármálafyrirtæki. Ég vísa til þess að í tillögum meiri hlutans sem fyrir okkur liggja er sett ákveðið frítekjumark í kjölfar breytinganna á sérstökum skatti á fjármálafyrirtæki og við teljum þær breytingar af hinu góða, enda mikilvægt að stórhækkun á bankaskattinum leiði ekki til þess að minni fjármálafyrirtæki lendi í alvarlegum vanda.
Í nefndinni hefur verið ágæt umræða um fyrirkomulag álagningar bankaskattsins. Við höfum rætt þá gagnrýni sem komið hefur fram á undanförnum vikum frá sérfræðingum um hvaða hættur þyrfti að varast við álagningu skattsins. Það liggur auðvitað fyrir að með stefnumörkun ríkisstjórnarinnar um stórfelldar skuldaniðurfellingar og fjármögnun þeirra í gegnum ríkissjóð, og þar með í gegnum bankaskattinn, á þjóðin afskaplega mikið undir því að þessi skattur innheimtist og mikilvægt að hann sé eins vel úr garði gerður og mögulegt er þannig að enginn vafi sé á að hann innheimtist. Við værum í mjög slæmri stöðu ef sú yrði raunin að okkur tækist ekki að innheimta hann með þeim hætti sem gert er ráð fyrir.
Ég tel að breytingartillögur meiri hlutans séu til góðs. Ég vil segja hér í ræðustól að mér finnst nefndarmeirihlutinn hafa lagt sig fram um að greiða úr óvissu og haga málum þannig að sem bestar líkur séu á að þessi skattur standist og það er mikilvægt.
Í ljósi þess að hér er verið að breyta í grundvallaratriðum um álagningaraðferð í bankaskattinum og við blasir að fjárhæðin mun verða einhvers staðar á fjórða tug milljarða í heildina tekið leggjum við til hækkun í breytingartillögum okkar, til að fjármagna að hluta til þær aðgerðir sem við teljum rétt að ráðast í, á hinum sérstaka bankaskatti um sem nemur 6 milljörðum. Það eru að okkar áliti engin sérstök rök fyrir því að nýta ekki bankaskatt í ýmis tímabundin samfélagsleg verkefni ef hann er örugg tekjulind og búið að haga löggjöfinni um hann á þann hátt að menn telja meiri líkur en minni og allgóðar líkur á því að hann standist fyrir dómi. Þá er sérstaklega hægt að horfa til ýmissa atvinnuþróunarverkefna, ýmissa verkefna sem í eðli sínu eru tímabundin fjárfestingarverkefni vegna þess að hér er um tímabundinn skattstofn að ræða.
Virðulegi forseti. Við gerum líka ráð fyrir því í tillögunum hér að við náum að afla tekna upp á 3,5 milljarða kr. með útboði aflaheimilda í makríl. Við teljum eðlilegt að leggja sérstakt gjald á úthlutun veiðiheimilda í nýjum tegundum enda sé í þeim tilvikum ekki fyrir hendi löng veiðireynsla sem geti réttlætt sögulegt tillit til þeirra sem hafa byggt hana upp eða mikil skuldsetning útgerðarfyrirtækja vegna fjárfestingar í veiðiheimildum. Það hefur enginn skuldsett sig til að kaupa kvóta í makríl og þegar af þeirri ástæðu er efnisrök fyrir því að leggja sérstakt gjald á nýja tegund eins og makrílinn. Hvernig nákvæmlega á að gera er síðan flóknara mál.
Við leggjum til í breytingartillögunni að farin verði sú leið að tekin verði frá að minnsta kosti 30% aflahlutdeildar á grundvelli veiðireynslu, það verði skipaður starfshópur fulltrúa stjórnvalda, hagsmunaaðila og sérfræðinga á sviði auðlindahagfræði sem útfærir nánari reglur um fyrirkomulag útboðs og gjaldtökureglurnar. Það er flækjustig í þessu verkefni. Við vitum af reynslu nágrannalandanna þar sem Færeyingar fóru mjög bratt í útboð makrílkvóta en það skilaði þeim ekki endilega góðum árangri þannig að það eru víti til að varast. Það er ekki endilega gefið að útboð þar sem kvótinn er allur afhentur hæstbjóðanda sé besta leiðin. Þarna þarf að stíga varlega til jarðar og gæta að því að við tryggjum einnig að það sé vel með farið og að við hámörkum arðinn og árangurinn af slíkri gjaldtöku.
Hið ánægjulega er að í samningum um þinglok í gærkvöldi náðist samkomulag við stjórnarflokka um að sérstök nefnd fái það verkefni að útfæra gjaldtöku á nýjar tegundir með það að markmiði að hægt verði að leggja slík gjöld á þegar á árinu 2014. Við ákváðum að það yrði nefndin sem er til samráðs um veiðigjald samkvæmt lögunum um veiðigjald sem fengi þetta verkefni og í sjálfu sér er, enn og aftur, erfitt að setja endanlega tölu á hversu mikils er að vænta. Er sú tala sem við setjum á hér í breytingartillögu upp á 3,5 milljarða, hún er auðvitað mikilli óvissu háð, raunsæ tala? Er hún eitthvað lægri? Ég efast um að hún gæti orðið hærri en það er auðvitað útfærsluefnið sem bíður nefndarinnar.
Við gerum líka ráð fyrir og gerum tillögu um breytingar á lögunum um veiðigjöld á þann veg að við nýtum okkur þá aðferð sem lögð var til í tillögum minni hluta atvinnuveganefndar í sumar þar sem gert var ráð fyrir að sett yrði á frítekjumark vegna bolfisks, til að verja minni útgerðir í bolfiski. Ég vísa til umfjöllunarinnar frá því í sumar hjá atvinnuveganefnd. Talan sem við áætlum sem tekjur, 2,1 milljarður, er í sjálfu sér innheimta þess gjalds á einum ársþriðjungi því að það er auðvitað búið að leggja á veiðigjaldið í þeirri mynd sem nú er út yfirstandandi fiskveiðiár til 31. ágúst næstkomandi. Við teljum að glænýjar tölur Hagstofu Íslands um afkomu í sjávarútvegi sýni skýrt að ekkert sé því til fyrirstöðu að ráðast í hækkun sérstaks veiðigjalds. Við teljum að þær tölur sýni skýrt að ríkisstjórnin gekk of langt í sumar í lækkun gjaldsins á bolfisksútgerðina og að hægt hefði verið að ná því fullkomlega réttmæta markmiði sem ríkisstjórnin hafði sem var að létta stöðu minni útgerðanna með öðrum og viðurhlutaminni hætti en ríkisstjórnin kaus að gera. Það var ekki þörf á því að lækka fjárhæð gjaldsins fyrir alla. Það voru skýr efnisrök fyrir því að lækka gjaldið á minni útgerðirnar með tilteknu frítekjumarki eins og minni hluti atvinnuveganefndar gerði tillögu um í sumar.
Við gerum síðan ráð fyrir því í breytingartillögu að virðisaukaskattur á útleigu hótel- og gistiherbergja og annarri gistiþjónustu verði aftur færður í 14% úr 7% og ætlum ákveðinn umþóttunartíma og aðlögunartíma í því efni. Auðvitað var greinin búin að fá langan tíma til að undirbúa sig fyrir fyrirhugaða hækkun þegar ákveðið var í sumar að draga þá hækkun til baka. Það eru ákveðin efnisrök fyrir því að greinin þurfi núna og þoli afskaplega vel hækkun á verði og það sé einfaldlega svo mikil fjölgun í komu ferðamanna að sérstök rök séu fyrir því að hækkun ferðamannaskattsins, svo hófleg sem hér er gert ráð fyrir, hafi ekki neikvæð áhrif á greinina heldur þvert á móti jákvæð.
Við gerum síðan ráð fyrir átaki til að herða skatteftirlit. Við gerum ráð fyrir framlögum til ríkisskattstjóra til að efla skatteftirlit og áætlum af því 3 milljarða í tekjur. Það hefur nokkuð verið gagnrýnt hér í ræðustól af hverju við treystum okkur til þess og af hverju við höfum þá ekki sótt þá peninga fyrr og svo mætti lengi telja. Ég tel einfaldlega að ef horft er á það sem við höfum heyrt frá embætti ríkisskattstjóra á undanförnum missirum þá eru vaxandi áhyggjur af svartri atvinnustarfsemi. Við sjáum mörg teikn um það að undirheimahagkerfi sé að festast í sessi. Við heyrum ítrekuð dæmi um það og þess hefur oft gætt í málflutningi frá til dæmis Vinnumálastofnun að sú stofnun telur sig verða mjög vara við svarta atvinnustarfsemi og að hún hafi einfaldlega aukist eftir hrun. Ýmsar hagtölur og ýmsar tölfræðilegar staðreyndir benda til að svört atvinnustarfsemi hafi aukist eftir hrun, umfang reiðufjár í umferð svo dæmi sé tekið, sem oft er notað sem viðmið um stærð undirheimahagkerfisins eða svarta hagkerfisins, hefur aukist mjög frá hruni og svo mætti lengi telja.
Að sjálfsögðu er hér um áætlanir að ræða og það er ekki hægt að „garantera“ fyrir fram eða lofa að örugglega sé hægt að ná 3 milljörðum þarna en það er hægt að áætla tekjur vegna úrbóta í því efni. Það er hins vegar oft hægt að ná árangri við að draga úr skattsvikum og kvótasvikum og ég þreytist ekki að minna á að í tíð minni sem félagsmálaráðherra kom ég að því að sett var á fót fjögurra manna deild hjá Vinnumálastofnun sem fylgdist með svartri atvinnustarfsemi og það var greining okkar, sem meira að segja fjármálaráðuneytið féllst á þegar verið var að gera niðurskurðarkröfu á félagsmálaráðuneytið, að okkur hefði tekist að spara um 800 millj. kr. á einu ári með þeirri deild. Ég held að við þurfum einfaldlega að fjárfesta í virku skatteftirliti á þessum tímum núna, að það séu sérlega sterk rök fyrir því núna og að það sé líka hluti af því að auka samfélagslega samstöðu um skattkerfið að allir viti að verið sé að ganga eftir því að allir borgi það sem þeim ber.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekkert að orðlengja þetta hér heldur vildi ég fylgja þessum tillögum úr hlaði. Við teljum að sú útfærsla, og þá ég kem aftur að því sem ég rakti í upphafi, sem við höfum á tekjuskattsbreytingunum fyrir meðaltekjufólkið, sé hugmynd sem skiptir máli fyrir stjórnarflokkana að hugleiða. Ég held að hún sé æskilegur valkostur, hún mundi skila meiri áþreifanlegum árangri fyrir fólk á meðaltekjum en flöt prósentulækkun um 0,8% og ég vil ítreka hvatningu til stjórnarflokkanna um að horfa á þá útfærslu og kanna kosti hennar ítarlega.